152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:45]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki mjög miklar væntingar til þessarar ríkisstjórnar þegar kemur að þessu málefnasviði, kannski sérstaklega í ljósi þess að það hefur orðið dráttur á því að mjög skýrum fyrirmælum frá Alþingi um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra sé fylgt. Ég átta mig ekki á því hvers vegna þetta hefur dregist svona. Eins verð ég að viðurkenna að ég hef ekki miklar væntingar til þess að þessar nauðsynlegu breytingar á lögræðislögum og öðrum lögum nái fram að ganga á þessu kjörtímabili. En auðvitað vonum við það besta og ýtum á það eins og við mögulega getum í stjórnarandstöðunni.