fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar. Það kann auðvitað að virka hálfþreytandi að stjórnarandstaðan sé stöðugt að hrópa að það þurfi meiri útgjöld, meiri útgjöld. En það er nú bara þannig að það kostar mjög mikla peninga að verja félagsleg réttindi. NPA-samningar kosta peninga og það þarf að gera ráð fyrir svona löguðu í fjárlögum. Þess vegna valda þessi fjárlög núna, í kjölfarið á kynningu á stjórnarsáttmála þar sem boðuð er sókn í málefnum fatlaðs fólks, ofboðslega miklum vonbrigðum.