152. löggjafarþing — 5. fundur,  4. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:50]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Við ræðum hér fjárlög og af mörgu er að taka. Það er býsna stuttur tími þó að hann sé reyndar lengri, að ég hygg, en þessi eina mínúta og 50 sekúndur sem mælaborðið sýnir mér. — Þá er búið að laga það, ég varð aðeins á undan tímanum.

Mig langar til að byrja á því að ræða orkumálin og ég ætla að þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að mæta í salinn. Það er eftir því tekið að það gerðu ekki allir þegar þeir voru til kallaðir. Og mér finnst satt best að segja, svo að ég noti tækifærið hér í upphafi, ekki góður bragur á því hjá hæstv. forseta Alþingis að þegar verið er að ræða mál á borð við fjárlög á þeim knappa tíma sem hefur verið til stefnu til að vinna það plagg, og það þarfnast þess vegna mikillar yfirlegu og mikillar vinnu, að boða til laugardagsfundar án þess að hafa tryggt að þingmenn njóti þess í aðhaldshlutverki sínu að hafa aðgang að ráðherrum. Ég verð að segja að mér finnst það ámælisvert. Ég ætla jafnframt að nýta tækifærið til að ræða það við þá aðila sem bera ábyrgð á því, en allra síst hæstv. ráðherra sem mætti hér. Aðrir verða að fá að heyra þann söng og tími mun gefast til þess.

Mig langar til að byrja á því, sem er náttúrlega ekki best geymda leyndarmál ríkisstjórnarinnar, að hún er sinn eigin hatrammasti andstæðingur þegar kemur að andstöðu við eitt stóra málið í eigin stjórnarsáttmála, þ.e. í tíð fyrri ríkisstjórnar, og þá er ég að tala um hálendisþjóðgarðinn. Ég ætla að koma aðeins að því á eftir en það tengist orkuöflun. Við erum með orkuskipti í samgöngum á dagskrá. Það er fókus af hálfu stjórnvalda á rafbílavæðinguna. Uppbygging almenningssamgangna er auðvitað gríðarlega mikilvæg líka. En við eigum önnur stór tækifæri og eitt þeirra er sjávarútvegurinn. Þar hafa verið stigin stór skref af hálfu sjávarútvegsins en það vantar kannski að stjórnvöld stígi inn í með innviðauppbyggingu. Þetta er stóra tækifærið fyrir okkur og við ættum að sjá — ég ætla nú kannski ekki að segja sóma okkur í því en við ættum að sjá tækifærin í því að vera fyrst til að fara í orkuskipti í sjávarútvegi, vera þarna róttæk og framsýn og færa skipaflotann okkar sem fyrst yfir á grænt eldsneyti sem unnið er úr íslenskum orkugjöfum. Við eigum tæknilegu lausnirnar en auðvitað þarf nauðsynlega innviðauppbyggingu.

Í forgrunni er svo auðvitað áframhaldandi stuðningur við nýsköpun. Við eigum nýsköpunarfyrirtæki, við erum með verkefni sem njóta viðurkenningar á alþjóðavísu. Okkur vantar herslumuninn. Við getum t.d. séð hvernig samvinna sjávarútvegs- og orkufyrirtækja hafa skilað okkur alveg ótrúlegum árangri í samdrætti í losun frá fiskimjölsverksmiðjum þar sem endurnýjanleg orka er nýtt í stað olíu. En nú berast fréttir af því að Landsvirkjun hafi ákveðið að takmarka afhendingu á raforku til verksmiðjanna og þær hafi í sínum orkusamningum samið um skerðanlega raforku. Það snertir bæði fyrirtækin og okkur þjóðina að við skulum vera í þeirri stöðu í landi sem er fullt af vatnsorku og orku úr öðrum endurnýjanlegum orkulindum að við getum ekki sinnt þessu.

Ég hefði því áhuga á að heyra frá hæstv. ráðherra hvort hann hafi sýn á hvernig við bregðumst við þessu og hvort sú sýn fari saman við stefnu ríkisstjórnarinnar í heild eða hvort við séum enn að sjá dæmi um hið margrómaða fjölskipaða stjórnvald sem ýmsir ráðherrar innan ríkisstjórnarinnar, í samvinnu ríkisstjórnarflokkanna þriggja, hafa beitt fyrir sig þegar þeir lenda í togstreitu á milli eigin sýnar og síns flokks og þess sem ríkisstjórnin er að reyna að ná samstöðu um.

Tengt þessu, af því að ég talaði áðan um að ríkisstjórnin væri einn hatrammasti andstæðingur hálendisþjóðgarðsins eða hefði verið það í meðferð hans á síðasta kjörtímabili, langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvar liggja þá mörkin á milli framtíðarorkuöflunar okkar og hálendisþjóðgarðs? Eins og ég skil orð forsvarsfólks ríkisstjórnarinnar er ekki búið að gefa það upp á bátinn.

Síðan kannski tengt þessu líka, vegna þess að nú hefur ríkisstjórnin lýst því yfir að færa eigi alla virkjunarkosti í biðflokk, þ.e. bæði úr nýtingarflokki og verndarflokki: Gæti hæstv. ráðherra útskýrt hér hvað það þýðir á mannamáli? Hvað þýðir það fyrir orkuöflun og hvað þýðir það fyrir landvernd á næstu fjórum? Þetta er það sem ég hefði áhuga á að fá sýn hæstv. ráðherra á hér á eftir.

En það voru fleiri atriði. Umhverfisráðuneyti er ekki eina ráðuneytið sem Vinstri græn létu af hendi í samningaviðræðum um áframhaldandi setu í forsætisráðherrastólnum. Heilbrigðisráðuneytið fauk líka. Það er ekkert launungarmál að samstarfsflokkarnir hrukku upp við vondan draum þegar leið að kosningum og afneituðu stefnu ríkisstjórnar sinnar á liðnu kjörtímabili, ekki einu sinni og ekki tvisvar heldur oftar. Útgangspunkturinn í þeirri gagnrýni sem þessir flokkar fengu á að styðja stefnu Vinstri grænna í heilbrigðismálum var alltaf að ríkisstjórn Íslands væri fjölskipað stjórnvald. Ráðherra Vinstri grænna réði för í heilbrigðismálum. Nú er staðan önnur og þar situr þingmaður Framsóknar sem í aðdraganda kosninga lýsti því yfir að of langt hefði verið gengið í ríkisvæðingu heilbrigðiskerfisins með tilheyrandi biðlistum. Nú berast fréttir af því að sá hinn sami, nú hæstv. heilbrigðisráðherra, hafi veitt sérstakt fjármagn til Landspítala til að útvista vel á annað hundrað völdum aðgerðum og stytta biðlista. Þó að þess sjáist sannarlega ekki stað í fjárlagafrumvarpinu, eins og ég kom inn á í ræðu minni í gær, að gera eigi Sjúkratryggingum Íslands kleift að fara í fleiri slík verkefni ætla ég að vona að þetta sé forsmekkur að því sem koma skal með tilheyrandi styttingu þeirra biðlista sem hafa orðið einkennismerki ríkisstjórnarsamstarfs þessara þriggja flokka.

Ég hafði hins vegar óskað eftir því að fá hingað fyrrverandi hæstv. heilbrigðisráðherra, sem nú er ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar, til að ræða þetta með völd einstakra ráðherra í fjölskipuðu stjórnvaldi. Því miður, aftur segi ég það, frú forseti, sá ráðherra sér það ekki fært. Ég skil það vel. Það er gott veður úti og það er laugardagur. Ég ætla engu að síður að varpa spurningunni áfram og fæ vonandi tækifæri til að eiga þessi orðaskipti við hæstv. ráðherra. Nú bera hvorki stjórnarsáttmálinn né fjárlagafrumvarpið þess merki að sérstök breyting verði á stefnu eða áherslum hvað varðar gjald fyrir nýtingu á sjávarauðlindinni. En ég rifjaði upp stefnu — það má tala um hugsjónir —Vinstri grænna frá því áður en þau gengu í hjónaband með þeim flokkum sem hafa gert það að listgrein að verja hagsmuni stórútgerðarinnar í þessu máli. Mig langaði til að spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra hvort ekki stæði til að dusta rykið af því markmiði að nýting á sjávarauðlindinni yrði háð tímabundnum samningum. Mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann myndi beita sér fyrir því annars vegar og hins vegar því að greiðsla fyrir afnot af þessari sömu auðlind verði færð nær raunheimum, þ.e. það fengist eðlilegt og sanngjarnt verð með því að bjóða út með markaðsleið, en ef slík leið væri of kapítalísk fyrir hæstv. ráðherra væri jafnvel horft til annarra leiða til að ná fram réttlæti fyrir þjóðina.

Ég hafði svo sem líka hugsað mér að spyrja hæstv. ráðherra landbúnaðarmála sem fyrrverandi umhverfisráðherra á árum áður hvort hún myndi nýta sér vald sitt sem ráðherra þessara málaflokka í fjölskipuðu stjórnvaldi til að beita sér fyrir og ná fram breytingum á styrkjakerfi landbúnaðarins, færa það í átt frá framleiðslutengdum styrkjum í átt til styrkja fyrir nýsköpun og græna framleiðslu. Hvort hún hygðist styðja sérstaklega við rekstur sem stöðvar losun gróðurhúsalofttegunda frá jarðvegi og gróðri, t.d. með endurheimt votlendis og hnignaðs mólendis. Þess sér ekki stað í fjárlögum. Ég sé ekki þessa stefnu mótaða í stjórnarsáttmála. Þýðir það að þetta sé ekki stefna Vinstri grænna heldur eða þýðir það að í þessu tilfelli sé ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála ekki fjölskipað stjórnvald þar sem viðkomandi ráðherra nær sínu fram heldur samansafn skoðana og sýna og áherslna þessara þriggja flokka sem myndast þá í hinum lægsta samnefnara?

Þetta eru spurningar sem ég verð að fá að bera upp síðar (Forseti hringir.) og ég óska eftir því að þegar talin er þörf á því næst að þingmenn sitji hér á laugardegi til að ræða mál verði séð til þess að þeir hafi aðgang að ráðherrum.