fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir bæði innleggið og spurningarnar. Þær eru stórar en þetta eru lykilspurningar. Ég skal nú bara vera hreinskilinn með það að ég hef mikið velt því fyrir mér hvernig sé best að fara í þessa vinnu vegna þess að þetta er gríðarlega stórt verkefni. Mitt fyrsta verk í rauninni þegar kom að heimsóknum var að ég fékk til mín, í þessari röð, fyrst Landvernd, síðan Náttúruverndarsamtök Íslands, síðan Landsvirkjun og svo Samtök iðnaðarins. Núna er ég á þeim stað að reyna að átta mig á því hvernig menn nálgast þetta verkefni. Ég held að það væri til mikils unnið ef við getum komist á þann stað að við gætum alla vega áttað okkur á því frá hvaða grunnpunkti við erum að ræða hlutina því að mér finnst umræðan vera svolítið þannig að menn gefa sér ákveðnar forsendur og sömuleiðis forsendur varðandi það hvar aðrir eru og hvernig þeir nálgast hlutina og maður þarf ekki að ræða við marga eða hlusta á marga til að átta sig á því að það er kannski ekki alveg þannig. Nú dreymir mig ekki þann draum að við sitjum hérna eftir einhverja mánuði eða einhver ár og allir séu sammála einhverri niðurstöðu en ef við komumst alla vega á þann stað að átta okkur á því hver staðan er, stöðumat og hvaða leiðir eru mögulegar til að ná því sem við ætlum okkur, sem ég held að sé breið samstaða um, ef við komumst alla vega þangað og erum síðan sammála um hvað við erum ósammála um þá er til mikils unnið. (Forseti hringir.) En af því að tími minn er búinn núna, því miður, ætla ég að reyna að bæta í hvað varðar þessar góðu spurningar í næsta andsvari.