152. löggjafarþing — 6. fundur,  7. des. 2021.

mannabreytingar í nefndum.

[13:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist bréf, dagsett í dag, frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, sbr. 16. gr. þingskapa.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir tekur sæti Óla Björns Kárasonar sem varamaður í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins og Diljá Mist Einarsdóttir tekur sæti Haraldar Benediktssonar sem varamaður í Íslandsdeild NATO-þingsins. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.