breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Forseti. Ég vil spyrja ráðherra aðeins um þá breytingu sem virðist vera á því hvernig ráðuneytið meðhöndlar 69. gr. almannatryggingalaga þar sem nú er gert ráð fyrir leiðréttingu á vanmati hækkana 2021. Verðbólgan varð hærri en gert hafði verið ráð fyrir 2021, svo að munar 0,8%, sem á þá að leggja ofan á hækkun ársins 2022. Það er 3,8% launaþróun 2022, 0,8% bætast við það sem verður 4,6% grunnur. Svo ákveður ríkisstjórnin að bæta við 1% í viðbót upp á 5,6%. Hingað til hefur skýringin verið sú að það megi bara gera þessa breytingu einu sinni á ári og þá fyrir fjárlög komandi árs en núna er komin ný skilgreining án þess að lög hafi sérstaklega breyst, ég sé alla vega ekki í þessu frumvarpi að verið sé að breyta neinu í lögunum sem ætti að breyta skilgreiningunni.
Mig langar því að spyrja ráðherra: Af hverju er þessi viðhorfsbreyting til notkunar á þessum lagaákvæðum?