fjármálastefna 2022 - 2026.
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt atriði sem við höfum skrifað í lögin að fjármálaráð eigi að hafa eftirlit með. Við erum með sérstakt ákvæði í lögunum sem felur fjármálaráði að veita þinginu umsögn um það hvort líklegt sé að við séum að sigla í átt til þess að geta látið reglurnar taka nýju gildi á þessu tímamarki. Ég tel að þetta ráðist þegar að því kemur að verulegu leyti af hagvaxtarstiginu. Það ætti ekki að vera stórkostlegt mál að sjá skuldahlutföllin sigla smám saman aftur í átt að 30% viðmiðinu. Ef við höfum náð frumjöfnuði að nýju ætti hagvöxturinn á hverju ári smám saman að ýta okkur í þá átt.
Það má hins vegar alveg leyfa sér að taka þá umræðu hvar skuldastiginu sé rétt stillt. 30% er tiltölulega grimm regla. En ég held líka að við höfum reynslu af því að vera, sem mjög opið og tiltölulega fábrotið hagkerfi, útsett fyrir stórum áföllum. Ef við skoðum alþjóðlega þróun, sem ég hygg að sé m.a. rakin í greinargerðinni, sjáum við að dýpri kreppum er að fjölga og þær virðast reynast dýpri eftir því sem árin hafa liðið. Eftir því sem alþjóðavæðingin hefur tekið meira yfir þurfum við að vera reiðubúin til að taka í fangið dýpri og örari niðursveiflur en við höfum kannski mátt venjast síðastliðin 100 ár. Það þýðir að við þurfum að nota góðu árin til að safna í kornhlöðurnar og þar getur nokkuð stíf skuldaregla komið til. Ég tel t.d. að við eigum að hafa stífari skuldareglu fyrir ríkissjóð en evrusvæðið og að það hafi sýnt sig í þessari niðursveiflu að það hafi reynst okkur alveg gríðarlega dýrmætt. En við gerðum rétt ef við notuðum næstu ár til að þróa þessa umræðu áfram, (Forseti hringir.) spyrja hvernig okkur gengur frá einu ári til þess næsta og hlusta eftir ábendingum frá fjármálaráði.