152. löggjafarþing — 7. fundur,  8. des. 2021.

störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Herra forseti. Ég sé mig tilneyddan til að koma hér aðeins í pontu í framhaldi af umræðum sem áttu sér stað í þingsal í gær þar sem hv. þingmenn Miðflokksins áttu frumkvæði að því að ræða friðlýsingu jarðarinnar Dranga á Ströndum. Ég held, herra forseti, að það hljóti að vera lágmarkskrafa til okkar þingmanna sem hér sitjum að fara rétt með mál þegar við förum af stað í umræðum sem þessari. En til þess að reyna að halda hinu rétta til haga þá, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag, var þessi friðlýsing ráðherrans ekki framkvæmd í skjóli nætur og alls ekki í óeiningu við þá sem eiga jörðina sem, eins og fram hefur komið, óskuðu sérstaklega eftir því við ráðherrann að hann færi í friðlýsingarferli vegna jarðarinnar. Þar er eignarrétturinn ríkur, held ég að við þingmenn hér hljótum að sameinast um. Svo því sé til haga haldið hefur verið unnið að þessu verkefni síðan 2018 í farsælu samstarfi þeirra aðila sem þar að koma. Og kannski felast tímamótin í þessari friðlýsingu í akkúrat því að þarna er í fyrsta sinn verið að virkja ákvæði náttúruverndarlaga um að friðlýsa svæði sem óbyggt víðerni. Þau eru af skornum skammti í Evrópu. Við búum hins vegar svo vel á Íslandi að eiga töluverðan fjölda þeirra evrópsku óbyggðu víðerna sem eru eftir. Því fagna ég þessum áhuga og þessum ríka vilja landeigenda Dranga á Ströndum til að vinna þá vinnu í rólegheitum og í fullu samráði og sátt við alla aðila. Svo því sé haldið til haga.