störf þingsins.
Herra forseti. Eins og fram hefur komið tók hæstv. þáverandi umhverfisráðherra upp á því að friðlýsa jörðinni Dranga rétt áður en hann lét af embætti og hafði ekki fyrir því að tilkynna um það, a.m.k. ekki opinberlega. Þetta er, að því er virðist, fyrst og fremst gert til að koma í veg fyrir að hægt sé að ráðast í framkvæmdir við Hvalárvirkjun, gríðarlega mikilvægar framkvæmdir fyrir Vestfirði alla og ekki hvað síst byggðarlög á Ströndum.
Hv. þm. Orri Páll Jóhannsson virðist að einhverju leyti hafa misskilið umræðu um þetta mál því að hv. þingmaður heldur því fram að það séu einhver tíðindi að forsvarsmenn þess félags sem fer með eignarhald þessarar jarðar hafi verið hlynntir friðuninni, friðlýsingunni. Sömu aðilar hafa beitt sér mjög gegn því að af þessum virkjunaráformum yrði vegna þess að það er engin frétt í því fólgin að eigendur jarðarinnar eða forsvarsmenn þessa félags sem á jörðina hafi fagnað ákvörðun ráðherrans.
En er það gott fordæmi að félög geti keypt upp jarðir hér og þar á landinu og farið fram á það af ráðherra að hann, fram hjá Alþingi, friði svo stöku jarðir með miklum áhrifum á byggðarlögin í kring og jafnvel orkubúskap landsins? Það getur varla verið gott fordæmi. Og það getur ekki verið gott fordæmi fyrir Alþingi að ráðherra komist upp með svona framgöngu án þess að við tökum það formlega fyrir á þinginu, því að ef sú er raunin er hæstv. ráðherra með þessari aðgerð ekki aðeins búinn að skemma fyrir áformum um Hvalárvirkjun heldur í rauninni búinn að eyðileggja rammaáætlun eins og hún leggur sig, alla fyrri áfanga hennar og framtíðarumræðu um rammaáætlun, því að þá skiptir hún engu máli lengur. Þá skiptir ekki máli hvað Alþingi ályktar. Ef Alþingi telur að rétt sé að nýta ákveðna virkjunarkosti þá geti ráðherra einfaldlega gripið þar inni í. Og þá væntanlega á hinn veginn líka.