störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að í nýjum stjórnarsáttmála er ákveðið að sett verði markmið um hlutfall opinberra starfa sem unnin verða utan höfuðborgarsvæðisins og að störf hjá ríkinu verða ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Markmið þessa er að styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu. Ég veit að margir fagna því enda mikil lífsgæði fólgin í því að búa í því byggðarlagi þar sem fólki líður best. Það er svo aftur hagur samfélagsins alls að hvert byggðarlag byggi fólk með ólíka þekkingu og færni. Það getur verið liður í að efla frjó og drífandi samfélög um allt land þannig að grónar atvinnugreinar geti dafnað við hlið nýrra starfa. Sérhæfð störf og opinber verkefni geta svo sannarlega dreifst um landið. Það er samt ekki sama hvernig við nálgumst skilgreiningu staðbundinna starfa. Það þarf algerlega að snúa hugsuninni við frá því sem lengst hefur tíðkast, byrja á því að skilgreina störf sem eru staðbundin í dreifbýlustu samfélögunum en ekki öfugt, störf þar sem hægt er að nota fjarvinnu til að efla og styrkja þjónustu sem eðlilegt er að dreifist um landið.
Byrjum á að greina opinber störf sem krefjast viðveru starfsmanna á tilteknum stað án þess að þörf sé fyrir fullt starf. Þetta getur t.d. átt við afgreiðslu sýslumanns á Þórshöfn, hjúkrun á Borgarfirði eystra eða eðlisfræðikennslu í litlum framhaldsskóla. Þarna býður tæknin upp á ótal tækifæri til að skapa eftirsóknarverð störf þar sem staðbundin þjónusta væri hluti starfsins og þar með tryggð, og viðkomandi starfsmaður nýtir starfsaðstöðuna til að leysa fleiri verkefni. Ef rétt er á málum haldið geta sett markmið valdið straumhvörfum í rekstri opinberra verkefna og í byggðaþróun.