störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fram undan er hátíð ljóss og friðar en stór hópur í samfélagi okkar kvíðir komu jólanna, fólk sem býr við fátækt, fólk sem býr við sárafátækt og getur ekki gefið börnum sínum jólagjafir. Að fara í biðröð eftir mat eru þung og erfið skref, hvað þá með börn sér við hlið. Það eru örlög einstæðra foreldra og öryrkja. Annar hópur sem hefur það einstaklega erfitt eru einstaklingar sem eru einangraðir í sárafátækt, einangraðir á heimili sínu og enginn er að spá í hvernig sá hópur hefur það. Þeir eru einangraðir annaðhvort vegna fælni, þeir fara ekki út, eða vegna þess að Covid hefur valdið því að þeir geta ekki leitað sér hjálpar. Og annað er að þeir vita ekki hvert þeir eiga að leita að hjálpinni. Við eigum að sjá til þess að allir hafi það gott en ekki bara fáir útvaldir. Ef rétt væri gefið þá væru bætur almannatrygginga ekki 240.000 kr. á mánuði og búið að skatta þær um 35.000 kr. á mánuði. Ef skatturinn væri ekki til staðar væru þetta þó 275.000 kr., sem væri strax skömminni skárra. Ef rétt væri gefið og kjaragliðnunin væri leiðrétt þá værum við að láta þetta fólk fá 350.000 kr. skatta- og skerðingarlaust í dag. Það væri þá alla vega í áttina að því að þetta fólk geti lifað með reisn og þyrfti ekki að standa með börnin sín í biðröðum eftir mat.