störf þingsins.
Herra forseti. Hér hafa þeir raðað sér í ræðustól, að mér sýnist helmingur þeirra stjórnarliða sem kvaddi sér hljóðs undir störfum þingsins og talað fyrir virkjunarstefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Einn þingmaðurinn gekk svo langt að segja að nú upplifðum við undanfara alvarlegs orkuskorts. Ég held að fólk þurfi aðeins að anda í kviðinn. Á Íslandi er framleidd meiri orka miðað við höfðatölu en í nokkru öðru landi, miklu meiri — miklu, miklu meiri. Það sem við erum að upplifa núna er bilun í vél í Búrfellsstöð. Við erum að upplifa of lélegt flutningskerfi vegna þess að ekki hefur náðst sátt innan stjórnarliðsins um uppbyggingu þess og við sjáum þetta birtast með því að fólk eða fyrirtæki sem fá afslátt af raforku með því að kaupa skerðanlega raforku lenda í skerðingu. Þó það nú væri. Það var díllinn sem þau skrifuðu upp á. Það er díllinn sem loðnuverksmiðjurnar fá hjá Landsvirkjun, fá raforkuna ódýrari gegn því að Landsvirkjun geti skrúfað fyrir hana ef þannig árar. Jú, svo skrúfaði Landsvirkjun líka fyrir rafmyntir og það mætti kannski bara verða varanlegt.
Þetta er aðeins angi af virkjunaráróðrinum sem fór á fullt fyrir kosningar og var á fullri fart í tengslum við stjórnarmyndun og sér greinilega ekki fyrir endann á. Síðasta kjörtímabil sáum við rammaáætlun og hálendisþjóðgarðinn ofin saman í ógeðspakka sem varð til þess að bæði voru drepin, ekki af okkur í stjórnarandstöðunni heldur af stjórnarliðunum. Við sáum frumvarp um flutningskerfi raforku sem snerist um að taka skipulagsvaldið af sveitarfélögunum. Þegar stjórnarliðar áttuðu sig á þeim vanskapnaði var það líka drepið, af þeim, ekki okkur.
Herra forseti. Flokkarnir sem bera ábyrgð á Kárahnjúkamistökunum eru í ríkisstjórn og eru greinilega enn við sama heygarðshornið. (Forseti hringir.) Þá er rétt að minna á að afhendingaröryggi raforku er hvergi verra á landinu, liggur við, (Forseti hringir.) en rétt í kringum Kárahnjúka. Stærsta og misheppnaðasta raforkuframkvæmd Íslandssögunnar er umkringd (Forseti hringir.) bóndabæjum þar sem fólk getur ekki stólað á trygga raforku.