stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið og fyrirspurnina. Það er erfitt við þetta að eiga. Það er auðvelt að koma hér upp og varpa fram hugmyndum en það er oft erfiðara að segja hvernig við eigum að framkvæma þær. Hv. þingmaður og framsögumaður minntist á það að hér hefði verið sett álag á útflutning. Þannig var það, allt að 25% á þorsk á sínum tíma. Ég minni bara á að Evrópusambandið setur töluverða tolla á innfluttan fisk frá Íslandi, makríl t.d., löngu og aðrar tegundir. Við höfum óskað eftir því að það yrði fellt niður en Evrópusambandið ekki orðið við því. Það eru mjög mörg fyrirtæki sem leggja fisk inn á markaðinn. Það er auðvitað ein leið að segja að aðili sem landar hjá sjálfum sér setji umframafla inn á markað, að með því aukum við kannski bara útflutninginn. Við þurfum að finna leiðir til þess að auðlindin okkar sé auðlindin okkar allra og við séum að vinna hana hérna heima og fólkið okkar fái tækifæri til að vinna hana, að hér verði virðisaukinn af fiskinum. Ég er bara í öllum málum þar, að virðisaukinn af því sem tilheyrir landinu, hvort sem það er rafmagn eða fiskur eða hvað það er, verði eftir hérna heima. Ég er kannski ekki klár með einhverja tillögu um hvernig við eigum að gera þetta en ég held að við eigum að fara í þessa vinnu saman og finna leiðina til þess að gera þetta, til þess að auka verðmæti hérna heima og og fjölga störfum. Það er ekki bara í okkar kjördæmi, Suðurkjördæmi, ég hugsa að flestar fiskvinnslur sem lokuðu út af þessu ástandi hafi verið á höfuðborgarsvæðinu og á Snæfellsnesi, stórar og glæsilegar fiskvinnslur sem voru í broddi fylkingar þegar við byrjuðum að flytja út ferskan fisk með flugi.