velferð dýra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Já, það er talað um að þarna séu milli 200 og 300 millj. kr. á ári sem þessir 119 bændur fá greitt fyrir þessa iðju, mismikið þó auðvitað af því þeir eru með mismargar hryssur á sínum snærum. Þannig að það liggur fyrir. En um leið vil ég benda á að hér erum við hins vegar að fórna mun meiri hagsmunum fyrir minni. Við erum að fórna ásýnd okkar á erlendri grundu gagnvart hrossarækt og útflutningi á hrossum sem gefur okkur hins vegar á þessu ári um 2 milljarða kr. ef rétt er áætlað samkvæmt þeim gögnum sem ég hef frá Íslandsstofu. Þannig að þessi upphæð, myndi ég segja, hv. þingmaður, er 200–300 millj. kr., okkur er í lófa lagið að aðstoða bændur og koma til móts við þá hvað það varðar. Allt til að koma í veg fyrir þetta dýraníð.