skipan ráðherra.
Forseti. Ég biðst afsökunar ef ég hef mistalið Sjálfstæðismenn, enda hafa þessar tölur verið mikið á flakki nýverið, kannski erfiðara að fylgjast með. En ég spurði hvort Jón Gunnarsson væri besta dómsmálaráðherraefni Sjálfstæðisflokksins og það er kannski ekki furða að maður spyrji vegna þess að það fylgja voða lítil rök fyrir þessum ákvörðunum stjórnarflokkanna um ráðherraefni og var sérstaklega furðulegt að fylgjast með því að ráðherrarnir sjálfir komu af fjöllum þegar þeir voru skipaðir í embætti. En mér finnst áhugavert að biðja hæstv. ráðherra að útskýra hvernig honum tekst að bera fullt traust, heyrist mér, til hæstv. dómsmálaráðherra en samt bara treysta honum til að gegna embættinu í 18 mánuði, sérstaklega í ljósi þess að dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa átt í stökustu vandræðum með að sitja út heilt kjörtímabil. Ég spyr því hvort þetta ráðuneyti eigi ekki einmitt skilið smástöðugleika. Hvers vegna bara 18 mánuðir?