sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég flyt hér skýrslu heilbrigðisráðherra til upplýsingar um stöðu sóttvarnaaðgerða vegna heimsfaraldurs Covid-19 og það er í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga þar að lútandi um þróun faraldursins.
Um þróun faraldursins. Hann hefur fylgt okkur ansi lengi og er orðin býsna langvinnur, getum við sagt, og hefur sett mark sitt á daglegt líf okkar hér og um alla heimsbyggðina og nú í bráðum tvö ár.
Um áhrifin og afleiðingarnar þarf ekki að fjölyrða. Hér á landi greindist fyrsta smitið 28. febrúar 2020. Frá þeim tíma hafa um 19.000 manns smitast af Covid og um 550 hafa þurft á spítalainnlögn að halda. Tæplega 100 hafa þurft gjörgæslumeðferð og 35 hafa því miður látist af völdum Covid. Af þessum 550 hafa 220 þurft spítalainnlögn frá því 30. júní. Faraldurinn hefur hins vegar gengið yfir í bylgjum og frá upphafi hefur megináherslan verið sú að halda fjölda smita, eðlilega, í skefjum, vernda viðkvæma hópa og verja heilbrigðiskerfið í gegnum þessar bylgjur helst svo álagið verði ekki meira en það ræður við. Það gildir um allan heiminn. Við erum horfa á þessa viðureign með þeim hætti. Varnirnar hafa í meginatriðum falist í umfangsmikilli sýnatöku, öflugri smitrakningu, beitingu sóttkvíar og einangrun smitaðra samhliða samkomutakmörkunum og margvíslegum sóttvarnaráðstöfunum, bæði innan lands og á landamærum.
Almenn bólusetning gegn Covid hefur skilað árangri. Það er mælt í framsetningu tölfræðigagna. Þótt bólusetning veiti alls ekki fulla vernd gegn smiti veitir hún fólki góða vörn gegn veikindum og dregur verulega úr líkum á sjúkrahúsinnlögnum. Nú eru um 90% landsmanna 12 ára og eldri fullbólusett. Ljóst er að vörn bólusetningar dvínar með tímanum. Það eru þær upplýsingar sem við erum að fá staðfestar. Þess vegna erum við núna búin að hefja þessa örvunarbólusetningu eða þriðju umferð, þriðja skammt, og hafa nú rúmlega 121.000 einstaklingar sem eru 16 ára og eldri fengið slíkan örvunarskammt. Norska tölfræðin sýnir að örvunarbólusetningin veitir góða vörn gegn smiti. Hún veitir mjög góða vörn gegn veikindum. 14 daga nýgengi sjúkrahúsinnlagna á hverja 1.000 íbúa er um 1,1 hjá þeim sem hafa fengið örvunarskammt og það er tæplega sjö sinnum hærra hjá þeim sem eru fullbólusettir og nýgengi sjúkrahúsinnlagna er rúmlega 40 sinnum hærra hjá þeim sem ekki eru bólusettir, þ.e. ekki fullbólusettir, miðað við þá sem hafa fengið örvunarskammtinn. Þetta eru tölurnar í þessu.
Uppgjör vísindamanna við Háskóla Íslands sýnir enn fremur að vernd gegn smiti eftir örvunarskammt er 90% meiri en eftir skammt tvö. Það er óyggjandi að áhrifin dvína og er verið að tala um það núna að þetta sé einhvers staðar á bilinu fimm til sjö mánuðir Er áætlað að búið verði að bólusetja flesta með örvunarskammti hér á landi í febrúar/mars á næsta ári.
Ef við förum aðeins í tímalínuna frá því í sumar og það minnisblað sem sóttvarnalæknir sendi á heilbrigðisráðherra og var haft til hliðsjónar við nýjustu ákvörðun um reglurnar sem eru í gildi, þá má lesa þróunina ágætlega. Við skulum byrja 26. júní vegna þess að sú bylgja sem við erum að fara í gegnum byrjaði þar, má segja. Þá voru allar samkomutakmarkanir felldar úr gildi innan lands. Það leið u.þ.b. mánuður þangað til að smitum fór að fjölga verulega og í framhaldinu jókst álagið á heilbrigðiskerfið með alvarlegum veikindum og spítalainnlögnum. Samkomutakmarkanir þá voru hertar 25. júlí með 200 manna fjöldatakmörkunum, grímuskyldu og fleiri aðgerðum. Þetta skilaði árangri í þeim mælikvörðum sem við erum að horfa til. 3. september var sett ákvæði um notkun hraðprófa og þá fórum við að stækka viðburði og miða við 500 manna viðburði gegn framvísun vottorða. Í framhaldinu var 15. september ráðist í frekari tilslakanir og almennar fjöldatakmarkanir rýmkaðar í 500 manns og opnunartími veitingastaða lengdur til miðnættis, 24. Heimilaður fjöldi á þessum hraðprófsviðburðum, ef fólk fór í hraðgreiningarpróf, var færður í 1.500 manns. Við þessar breytingar, og þá er hægt að horfa á tölfræðina, jókst fjöldi smita lítillega, fór úr 20 í 40–60. Þá var ráðist í enn frekari afléttingar og þær tóku gildi 20. október. Þá fórum við í 2.000 manna almennar fjöldatakmarkanir, afléttingu grímuskyldu og lengdan opnunartíma en þó bara um einn klukkutíma, til klukkan eitt eftir miðnætti. En þá verða mjög merkjanleg skil ef maður horfir á tölurnar í þessu og næstu daga fjölgaði smitum mjög hratt.
Mér finnst svolítið gott að horfa á þessa tímalínu út frá þessum aðgerðum, hversu næmur faraldurinn er, ef ég get orðað það þannig, fyrir aðgerðunum, ef maður horfir á smittölur. Staðan á spítölunum versnaði um leið. Það er svona einhvern veginn 2% viðmið sem virðist alveg halda, af þeim sem smitast og þurfa á innlögn að halda.
Ég sé að tíminn er bara farinn og ég ekki hálfnaður með það sem ég ætlaði að segja. Þetta er mjög magnað, virðulegi forseti. Ég fæ kannski lengri tíma næst, en ég mun hlusta með athygli og reyni þá að grípa eitthvað í þessar tvær mínútur sem ég fæ í lokin.