152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:48]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna um sóttvarnir. Mér finnst eins og hæstv. ráðherra mjög lærdómsríkt að skoða tölurnar og tölfræðina og bera saman smit og aðgerðir og við eigum auðvitað að gera það og reyna að draga lærdóm af því. Það er mikilvægt að upplýsa þingið um stöðuna og um það hvernig stjórnvöld meta hana og þörfina fyrir aðgerðir.

Nú hefur faraldurinn staðið frá því í mars 2020. Fyrstu sóttvarnaaðgerðirnar tóku gildi 16. mars í fyrra svo að glíman hefur sannarlega staðið lengur en við vonuðumst til í fyrstu. Álagið á framlínufólkið okkar hefur nánast verið stöðugt síðan þá. Það er því ekkert spaug þegar því er spáð að næsti faraldur verði kulnun í starfi vegna álagsins og nú ríður enn ein bylgjan yfir. Við áttum von á þingmönnum Norðurlanda á fund forsætisnefndar Norðurlandaráðs í næstu viku hingað til lands. Í gær kom tilkynning um að fundurinn yrði rafrænn vegna vaxandi fjölda smitaðra og sóttvarnaaðgerða í hinum norrænu ríkjunum. Það þarf að fylgjast vel með þróuninni í löndunum í kringum okkur því að ólíklegt er að við munum sleppa við fleiri smit frekar en þau ef ekkert verður að gert.

Okkur hefur í þessari löngu baráttu við veiruna alltaf farnast best þegar við höfum farið að ráðleggingum sóttvarnalæknis. Ég vona að hæstv. heilbrigðisráðherra, sem nýlega hefur tekið við þessu mikilvæga verkefni, sé sammála okkur í Samfylkingunni um að það sé einmitt það besta í stöðunni að fara að ráðleggingum sóttvarnalæknis. Við vitum ekkert hversu lengi við þurfum að búa við einhvers konar aðgerðir en það gæti verið í töluverðan tíma í viðbót. Aðgerðirnar hitta fyrir fólk, stofnanir og atvinnugreinar með ólíkum hætti og til þess þarf að líta. Það væri því góð blanda að hæstv. ráðherra færi að ráðleggingum sóttvarnalæknis og um leið yrði tekin umræða á vettvangi þingsins um hvers vegna þær eru nauðsynlegar og hvernig löggjafinn og fjárveitingavaldið þurfi að bregðast við. Umræða yrði t.d. tekin um einstakar aðgerðir sem geta verið gífurlega íþyngjandi fyrir eina atvinnugrein en minna fyrir aðrar. Dæmi um það er þegar kráareigendum var gert að loka en staðir sem selja aðrar veitingar ásamt áfengi þurftu ekki að loka þrátt fyrir að vera með sambærilega starfsemi að mestu. Það er nauðsynlegt að fá betri upplýsingar og umræður um ýmis slík mál. Þingið þarf alltaf að bregðast við með fjárhagslegum stuðningi þegar aðgerðir verða augljóslega verulega íþyngjandi fyrir fólk og fyrirtæki.

Ein af ástæðunum fyrir því að grípa þarf til íþyngjandi sóttvarnaaðgerða er að heilbrigðiskerfið okkar er ekki í stakk búið til að takast á við veiruna. Í mörgum öðrum ríkjum eru sóttvarnaaðgerðir vægari þar sem viðnámsþróttur heilbrigðiskerfisins er meiri og Evrópulönd hafa fjölgað gjörgæslurýmum hjá sér svo um munar. Ekki er hægt að segja að sama þróun hafi átt sér stað hér á landi. Landspítalinn þarf að geta sinnt veikum einstaklingum, hvort sem veikindin eru vegna heimsfaraldurs eða af öðrum ástæðum. Við vitum ekki hversu lengi við þurfum að lifa við þessa óvissu en það hefur blasað við frá upphafi faraldursins að Landspítalinn getur ekki borið það aukna álag sem veiran hefur skapað. Því hefur þurft að fresta aðgerðum á spítalanum og biðlistarnir lengjast með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum þeirra sem eru látnir bíða. Það eru því mikil vonbrigði að strax í upphafi faraldursins hafi ekki verið gripið til aðgerða af hálfu stjórnvalda til að bæta þá óásættanlegu stöðu. Nauðsynlega þarf að setja auknar fjárveitingar til reksturs Landspítalans strax.

Þær fjárhæðir sem lagðar eru til í fjárlagafrumvarpinu duga engan veginn til að mæta vandanum. Það nægir ekki að setja þá fjármuni í farsóttadeild, endurhæfingarrými og hágæslurými sem lagðir eru til. Það verður einnig að mæta kröfum framlínustarfsmannanna og langtímaáskorunum sem felast í öldrun þjóðarinnar, manneklu og starfsaðstæðum sem valda álagi í kerfinu. Þessar langtímaáskoranir eru nátengdar umræðunni um kórónuveirufaraldurinn. Faraldurinn dregur fram veikleikann í kerfinu með svo skýrum hætti. Við getum brugðist við strax og það sem meira er: Við höfum efni á því.