sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Hæstv. ráðherra. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Það eru slétt tvö ár frá því að við fylgdumst óttaslegin með framandi veiru í Kína og að því er virtist harkalegum aðferðum við að hefta útbreiðslu hennar, innilokunum og takmörkunum á ferðafrelsi. Örfáum vikum síðar fylgdumst við með svipaðri atburðarás á Ítalíu og svo hér á Íslandi eins og við þekkjum öll. Í byrjun þessa faraldurs vissum við lítið. Við vorum auðvitað hrædd. Við þekktum ekki tölfræðina, vissum ekkert um hlutfall alvarlegra veikinda eða dauðsfalla, enda var markmiðið fyrstu vikurnar að fletja út kúrfuna svo að heilbrigðiskerfið færi ekki á hliðina. Það var sjálfsagt mál og við megum vera stolt af samstöðu þjóðarinnar í því verkefni. Síðan hafa sum sé liðið tvö ár. Við höfum á þessum tíma flatt út kúrfuna, bólusett þjóðina og við þekkjum lága hlutfallstölu alvarlegra veikinda. Skilaboðin og aðgerðirnar nú eru samt merkilega keimlík því þegar við þekktum ekki faraldurinn og áttum engin ráð.
Forseti. Ég verð að viðurkenna að mér finnst það ekki nóg rætt, sérstaklega í ljósi þess að það er ekkert sem bendir til, sem voru væntingar um í byrjun faraldurs, að hægt væri að útrýma þessari veiru úr heiminum. Í því ljósi er nauðsynlegt að hafa í huga að tilvera fólks er meira en veira. Það fer samt ekki mikið fyrir upplýsingafundum um andlega heilsu fólks, smitgát í þágu íþrótta eða lista, sóttkvínni gegn einsemd. Unga fólkið í elleftu sóttkvínni með lítil börn og, jú, líka fólkið sem má ekki að drekka bjór eftir kl. 11 að ónefndu fólkinu sem óttast um atvinnuöryggi sitt.
Ég hef í þessu samhengi áhyggjur af því að við séum hætt að greina á milli þess að spyrja eðlilegra spurninga og hafa jaðarskoðanir. Ég stend bjargföst í þeirri trú að frelsi fólks verði ekki takmarkað nema í ýtrustu neyð og til algjörra bráðabirgða. Meira að segja þá er eðlilegt og nauðsynlegt að spyrja spurninga. Spurninga verður sérstaklega að spyrja nú, því það virðist nú vera ákveðin óvissa um það hver markmiðin eru, hvort við stefnum að smitleysi eða stjórnuðu hjarðónæmi eða með öðrum orðum: Erum við að stefna að engum smitum eða ekki?
Ég verð því, virðulegi forseti, að fá að spyrja: Hvert er planið? Hvert er langtímaplanið og hver ákveður það? Ég tel að við verðum að hugsa þetta til framtíðar með það fyrir augum að veirur verða mögulega alltaf partur af tilveru okkar. Ég velti upp í því samhengi að það er vöntun á formlegu samtali um hvað er hér undir heildstætt til að vera betur í stakk búin til að setja stefnuna sameiginlega. Þannig að um leið og ég óska hæstv. heilbrigðisráðherra velfarnaðar með miklum væntingum um störf hans vil ég einnig fá að segja að þingið og lýðræðislega kjörnir fulltrúar þess ættu að hafa meira um þetta að segja. Það er meira hér undir en bara nokkurra mánaða átak í senn við veiru. Það er heilt samfélag undir þar sem mesti skaðinn getur verið seigfljótandi, langvinnur og ósýnilegur og krefst athygli okkar ekki síður en smittölur.