152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:58]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Forseti. Ég ber mikla virðingu fyrir því að við höfum verið að eiga við faraldur sem enginn þekkir og við erum í rauninni að kynnast jafnóðum. Þetta þýðir að um leið og vísindamenn telja sig vera komna með tök á veirunni þá breytir hún sér.

Mig langar aðeins að ræða börn. Fyrst hafði veiran lítil áhrif á þau. Ef þau smituðust veiktust þau ekki alvarlega. En núna erum við komin þangað að það er verið að ræða bólusetningu á börnum niður í fimm ára aldur. Svo virðist sem faraldurinn sé að breiðast hratt út á meðal barna. Í frétt í Morgunblaðinu stendur, með leyfi forseta:

„Markmiðið er að vernda börnin og rjúfa smitkeðjuna. Með bólusetningu aldurshópsins er markmiðið því bæði að vernda börnin sjálf og rjúfa smitkeðjuna.

„Þó alvarlegar afleiðingar séu sjaldgæfari hjá börnum en fullorðnum eru þær svo sannarlega til staðar og ef menn bera saman alvarlegar afleiðingar Covid miðað við bólusetningu eru þær miklu meiri af Covid en bólusetningunum,“ segir Þórólfur.

Spurður um það um hvers konar alvarlegar afleiðingar Covid-19 hafi sést hjá börnum segir Þórólfur að börn sem hafi veikst af Covid-19 hafi sum lent í því að sýna alvarlegt bólgusvar sem sést bara við mjög alvarlegar sýkingar, hjartabólgur og bólgur í lungum og innri líffærum.

133 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Þórólfur segir að miðað við smittölur síðustu daga sé faraldurinn ekki á uppleið hér á landi og vísbendingar séu um að hann sé á niðurleið. „Auðvitað vonumst við til þess að sú sé raunin,“ segir Þórólfur.“

Það er staðreynd, án þess að ég vilji eltast við samsæriskenningar sem nóg er um, að um er að ræða lítt rannsökuð bóluefni. Í þeirri staðreynd felst engin ásökun. Tímaramminn hefur einfaldlega verið mjög þröngur og verið að bregðast við erfiðri veiru eins hratt og mögulegt er. En sú staðreynd vekur engu að síður spurningar um hvort besta verndin fyrir börn sé bólusetning eða hvort við þurfum að horfa til annarra leiða þó að þær kunni að leiða til tímabundinna áhrifa á skólastarf.

Í frétt Morgunblaðsins stendur einnig, með leyfi forseta:

„Sóttvarnalæknir bendir á að mikil áhersla hafi verið lögð á að trufla skólastarf eins lítið og mögulegt er og einungis verið gripið til skólalokana í neyðartilvikum. Þá segir Þórólfur að þó börn veikist oftast ekki alvarlega þá geti þau auðveldlega smitað aðra og þannig drifið faraldurinn áfram. Þá geta börn veikst alvarlega af Covid-19 og því er bólusetning barna mikilvæg fyrir þau sjálf, að sögn Þórólfs.“

Það er gott markmið að trufla skólastarf eins lítið og mögulegt er. En ég velti engu að síður fyrir mér hvort það sé raunhæft og gott markmið þegar smitin eru jafn mikil og raun ber vitni meðal barna og aðalsmitleiðirnar eru í skólunum, hvort þá sé ekki hugsanlega kominn tími til að leggja það meginmarkmið til hliðar um stundarsakir frekar en að beita bara bólusetningum. Það er ekki góð lausn og það vill enginn að skólum sé lokað eða neitt í þá áttina en hugsanlega er þetta samt eitthvað sem þarf að skoða því að hér er ekki, því miður, um fullrannsakað bóluefni að ræða og ég endurtek að í því felst engin ásökun á einn eða neinn. Það eru bara aðstæðurnar sem við erum í. Ég velti því svolítið fyrir mér hvort þessi möguleiki hafi verið ræddur eða hvort við séum bara að einblína á að við ætlum alls ekki að loka skólunum vegna þess að ég tel alveg tíma til kominn að skoða hvort aðrar leiðir séu betri.