152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:02]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir skýrsluna, sem gefur að mínu mati greinargóða yfirsýn yfir stöðu faraldursins, þróun og stöðu bólusetninga og aðgerðir stjórnvalda til að hefta útbreiðslu faraldursins hér á landi. Sú staða sem uppi er nú er í raun ekki frábrugðin þeirri stöðu sem við höfum svo oft staðið frammi fyrir í þessum faraldri sem einkennist af óvissu og bið eftir betri vísindalegum upplýsingum til að auðvelda okkur að taka upplýstar ákvarðanir varðandi næstu skref. Nú er beðið eftir betri upplýsingum um hið nýja afbrigði, ómíkron, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra kom inn á áðan í skýrslu sinni í upphafi þessarar umræðu.

Ég vil taka undir orð hæstv. ráðherra um að á meðan nægilegar upplýsingar liggja ekki fyrir er óvarlegt að slaka á gildandi sóttvarnareglum, bæði innan lands og á landamærum. Okkar gæfa hefur verið frá upphafi þessa faraldurs að fylgja í megindráttum þeim tillögum sem sóttvarnalæknir hefur lagt fram, að treysta á vísindin og sérfræðingana, og er það mín von að nýr heilbrigðisráðherra muni halda áfram á þeirri vegferð.

Fyrir mig er það sérstök staða að standa hér á þessum stað og ræða sóttvarnaaðgerðir og stöðu Covid-19 á Íslandi, sérstök að því leyti að frá upphafi faraldursins, eða í mars 2020 þar til í september 2021, var ég í þeirri stöðu að vera í forsvari fyrir aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra og hafði það sem forgangsverkefni að fylgjast með og bregðast við þróun faraldursins á því svæði. Sá tími mun aldrei gleymast fyrir svo margra hluta sakir og var aðdáunarvert að fá að fylgjast með starfi og vinnu þríeykisins, heilbrigðisstarfsmanna og allra þeirra fjölda einstaklinga sem hafa lagt lóð á vogarskálarnar verkefninu til heilla, þeirri fagmennsku, yfirvegun og þrautseigju sem þau sýndu í þessu fordæmalausa og flókna verkefni. Það hefur verið okkar gæfa að fylgja vísindunum. Það yrði svo sannarlega mín von að við höldum áfram á þeirri braut.

Ég vil fá að nota þetta tækifæri hér til að þakka heilbrigðisstarfsfólki, lögreglu, sjúkraflutningamönnum, björgunarsveitum og þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem í mörgum tilfellum hafa lagt á sig ómælda vinnu og erfiði í þessari baráttu við veiruna skæðu. Við sem þjóð erum heppin með okkar framlínustarfsmenn. Þeir hafa náð að bregðast vel og örugglega við faraldrinum og eiga lof skilið. Heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknir eru ekki í öfundsverðri stöðu varðandi það að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, oft íþyngjandi og heftandi ákvarðanir um aðgerðir, boð og bönn. Ekki hafa allir verið sáttir við þær ákvarðanir eða aðgerðir og er það í raun ekkert óeðlilegt að mismunandi skoðanir séu uppi um það til hvaða aðgerða skuli grípa á hverjum tíma fyrir sig.

Það er einnig vel skiljanlegt að þolinmæði þjóðarinnar sé í raun að þolmörkum komin eftir tæplega tveggja ára þrautagöngu með þeim skelfilegu afleiðingum sem faraldurinn hefur haft á einstaklinga, fyrirtæki og efnahag landsins. En við erum þó öll að róa í sömu átt. Með þeim aðgerðum sem nú hefur verið farið í er það mín von að brátt hilli undir bjartari tíma, að við náum yfirhöndinni og líf okkar geti farið að komast í sem eðlilegast horf á ný. Það er sameiginlegt markmið okkar allra og með samtakamættinum munum við komast yfir endalínuna.