152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:07]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Nú hefur nýr heilbrigðisráðherra tekið við keflinu sem leiðtogi smitvarna á landinu á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar sem staðið hefur yfir í að verða tvö ár. Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja hæstv. ráðherra til dáða í baráttunni við þennan vágest og alveg sérstaklega vil ég hvetja hæstv. heilbrigðisráðherra til að gera betur í vernd mannréttinda en stjórnvöld hafa gert hingað til. Það er nefnilega mjög mikilvægt þegar frelsisskerðingar, skerðingar á mannréttindum fólks, eru orðnar hluti af daglegu lífi fólks, að við gætum að meðalhófinu. Meðalhófið kann að hljóma eins og eitthvert lögfræðilegt hugtak sem litlu máli skiptir á neyðartímum, en það er bara alls ekki þannig.

Sóttvarnalæknir hefur sagt það mjög skýrt að hann líti ekki á það sem sitt hlutverk að meta meðalhóf þeirra aðgerða sem hann leggur til við ríkisstjórnina. Mér hefur fundist vondur bragur á því að sjá að ríkisstjórnin er sífellt að skýla sér á bak við minnisblöð sóttvarnalæknis án þess að gera grein fyrir því mati sem hlýtur að hafa farið fram á þeim áhrifum sem þessar skerðingar munu hafa á réttindi fólks og þeim mótvægisaðgerðum sem fara verður í til að beita sér gegn þessum neikvæðu áhrifum. Ríkisstjórnin verður að sýna fram á það, sérstaklega þegar við erum komin svona langt inn í faraldurinn og búin að vera svona lengi í þessu ástandi, að hún hafi vegið og metið kosti og galla þess að fara í þessar aðgerðir. Hún þarf að sýna fram á að aðgerðirnar séu til þess fallnar að skila tilætluðum árangri, að engin önnur vægari úrræði dugi til. Þetta verða að vera tímabundnar aðgerðir og allt þetta mat þarf að vera aðgengilegt almenningi. Þar hafa stjórnvöld brugðist hingað til vegna þess að það er alltaf bara vísað í þetta minnisblað frá sóttvarnalækni. En það er ekki mat á áhrifum. Það er ekki mat á meðalhófi aðgerða. Ríkisstjórnin verður að gera betur í að upplýsa almenning um hvaða hagsmunamat liggur að baki ákvörðunum þeirra um frelsisskerðingar en hún hefur gert hingað til. Hún verður líka að gera betur í mótvægisaðgerðum til að minnka skaðann af þeim frelsisskerðingum, af þeirri skerðingu á þjónustu sem sóttvarnaaðgerðir hafa vissulega í för með sér.

Með mótvægisaðgerðum á ég einmitt við það að styrkja Landspítalann til þess að við höfum betri viðnámsþrótt gagnvart nýjum bylgjum faraldursins. Ég á líka við það að gera betur þegar kemur að viðbrögðum við hinum neikvæðu, geðrænu afleiðingum af þessari einangrun en við höfum gert hingað til, betur en lagt er til í núverandi fjárlagafrumvarpi að við gerum. Og auðvitað þarf að koma til móts við rekstraraðila sem enn eitt árið þurfa að búa við miklar takmarkanir og mikla óvissu um hvort ríkisstjórnin ætli að koma til móts við þau. Það liggur ekki enn þá fyrir af hálfu t.d. fyrirtækja í veitingageiranum hvernig þau eiga að komast í gegnum þessa aðventu ef ríkisstjórnin bregst ekki við og kemur með mótvægisaðgerðir. Upplýsingar fyrr en seinna er alltaf betra. Ég hvet ríkisstjórnina líka til dáða við að sýna á spilin og gefa upp hvort hún ætli að styðja betur við fólk en hún hefur gert hingað til.

Virðulegi forseti. Í lokahluta þessarar ræðu minnar vil ég aðeins ræða mál sem varðar það að sóttvarnalæknir minntist á að honum þættu faglegar forsendur til þess núna að gera greinarmun á fólki byggt á því hvort það hefði þegið örvunarskammt bóluefnis eða ekki, þ.e. að fólkið sem komið er með þriðja skammt bóluefnis sleppi við ákveðnar takmarkanir sem fólk með annan skammt bóluefnis eða kannski ekkert bóluefni þarf að búa við.

Ég vil vara við þessu, sér í lagi í ljósi þess að sóttvarnalæknir tekur ekki ábyrgð á því að meta meðalhóf þeirra aðgerða sem hann leggur til, en líka vegna þess að við viljum ekki mismuna fólki þar sem það er óþarfi ef vægari úrræði duga til. Nú búum við við mjög hátt hlutfall bólusettra á Íslandi. Við sjáum það að þjóðin tekur þátt þegar henni er boðið að gera það. Það að ekki gangi vel að bæta við örvunarskammti núna er ekki tilefni til þess að byrja að mismuna fólki á grundvelli þess hvort það hafi þegið þennan skammt eða ekki. Það er tilefni til að upplýsa almenning betur um kosti og galla þessa örvunarskammts. Upplýstur almenningur tekur upplýstar og góðar ákvarðanir. Það er frekar með því að höfða til almennrar skynsemi og samtakamáttar sem við náum árangri í þessari baráttu en ekki með mismunun og sundrungu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)