152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:12]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórssyni fyrir þá munnlegu skýrslu sem hann gaf okkur hér um stöðu sóttvarna. Ég vildi óska þess að þetta yrði eina skýrslan sem hæstv. ráðherra þurfi að flytja okkur um þetta mál en því miður held ég að það verði nú ekki svo vegna stöðunnar á faraldrinum, bæði hér innan lands og eins á heimsvísu. Það verður þörf á þessum umræðum eitthvað áfram og ég tel að það sé gott að umræðan fari með reglulegum hætti fram á Alþingi eins lengi og nauðsyn ber til.

Mér fannst gott hvernig hæstv. ráðherra fór yfir söguna í faraldrinum á Íslandi. Þetta er nefnilega orðinn talsvert langur tími og það er gott að rifja upp hvernig þróunin hefur verið og eins að setja þetta í tölfræðilegt samhengi eins og hæstv. ráðherra gerði því það er áhugavert að sjá hvernig við getum, í ljósi tímans, séð hvernig þær ráðstafanir sem gripið hefur verið til hafa áhrif á fjölda smita í samfélaginu. Þannig söfnum við í þekkingarbankann, ekki einungis vísindamenn um útbreiðslu veirunnar heldur einnig við sem löggjafarvald á Alþingi um hvernig bregðast megi við og eins getur samfélagið í heild séð hvernig ráðstafanir hafa áhrif. Ég tel að þetta skipti máli til þess einmitt að umræður og skilningur á aðgerðum og jafnvel gagnrýni á aðgerðir sem gripið er til séu byggðar á eins haldgóðum staðreyndum og þeirri þekkingu sem við öflum okkur alltaf eftir því sem tímanum vindur fram.

Mér hefur fundist mikilvægt það sem hefur verið gert, eins og hæstv. ráðherra fór raunar yfir, þ.e. að halda fjölda smita í skefjum, að vernda viðkvæma hópa og að verja heilbrigðiskerfið. Það var leiðarljós fyrrverandi hæstv. heilbrigðisráðherra og mér finnst mikilvægt að heyra að þetta sé það sem nýr hæstv. ráðherra ætlar einnig að vinna með. Ég tel að það hafi gagnast Íslandi vel að fylgja leiðbeiningum sérfræðinga og þar með sóttvarnalækni fremstan í flokki þegar kemur að viðbrögðum við veirufaraldrinum. Við sjáum að þetta hefur reynst vel því að tölur um dauðsföll hafa verið lágar hér á landi í samanburði við önnur lönd. Samkomutakmarkanir, þótt þær hafi vissulega verið íþyngjandi og séu ekki skemmtilegar fyrir nokkurn mann og hafi áhrif á efnahagslífið með ýmsum hætti, hafa engu að síður verið mildar miðað við það sem við höfum séð að gripið hefur verið til í ýmsum öðrum löndum. Hér hefur alltaf verið reynt að stilla þeim mjög í hóf. Mér finnst það gleðilegt og skipta máli að heyra það að 90% landsmanna, 12 ára og eldri, séu fullbólusett. Hins vegar finnst mér einnig mikilvægt að halda áfram að reyna að ná til þeirra sem tilheyra þessum hópi og ekki hafa af einhverjum ástæðum þegið bólusetningu, með upplýsingagjöf, með því sem kannski má kalla óhefðbundnum leiðum, eins og var reynt með bólusetningarbíl. Ég myndi vilja sjá haldið áfram að vinna á þennan hátt með samtali við fólk og upplýsingagjöf og stuðla þannig að því að bólusetningarhlutfallið verði sem allra hæst enda óyggjandi að bólusetningarnar hjálpa okkur í baráttunni.

Mig langar svo líka að nefna það í þessari umræðu og beina því til hæstv. heilbrigðisráðherra en einnig til hæstv. utanríkisráðherra, vegna þess að þetta heyrir að hluta til líka undir hann, að halda áfram í því átaki að koma bóluefni til þeirra landa sem ekki hafa getað tryggt sér kaup á bóluefni eins og ríkustu þjóðir heimsins hafa getað gert. Miðað við allt það sem við vitum ætti öllum að vera ljóst að þessi veirufaraldur klárast ekki fyrr en hann klárast á heimsvísu. Þess vegna skiptir máli að öll ríki heims hafi aðgang að bóluefni. Ég átta mig fyllilega á því að lítil þjóð eins og Ísland getur ekki ein og sér séð til þess að öll heimsbyggðin verði bólusett. En við getum lagt okkar af mörkum, bæði með því að gefa bóluefni eins og hefur verið gert með tvíhliða samningum, með því að taka þátt í COVAX-samstarfinu og eins með því að tala fyrir þessum málum alls staðar á alþjóðavettvangi og taka þátt í fjármögnun sem fer fram á alþjóðavettvangi. Þetta finnst mér skipta miklu máli, þarna berum við ábyrgð sem þjóð meðal þjóða og sem ein af ríkari þjóðum heimsins.

Að þessu sögðu þá ætla ég að fara að stytta mál mitt. Ég vil aftur þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna. Samtalið hérna mun halda áfram en ég vil nota tækifærið að lokum og þakka þeim fjölmörgu framlínustarfsmönnum sem hafa staðið vaktina ansi lengi og munu, því miður, þurfa að gera það eitthvað áfram sem og öllum þeim sem hafa lagað starf sitt og líf að þeim aðstæðum sem við búum við í þessum heimsfaraldri. En ég tel að við höfum efni og ástæðu til að geta haldið áfram að vinna eins vel úr stöðunni og mögulegt er með það fyrir höndum að vernda líf og heilsu landsmanna.