152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaaðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:22]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mig langaði til að byrja á því að nefna það sem mér finnst blasa við að öllum þessum tíma liðnum, sem er framlag almennings í þessum erfiðu aðstæðum, að almenningur hefur sýnt mikinn styrk og staðið sig vel. Það birtist t.d. í því að við erum með eitt hæsta bólusetningarhlutfall heims. Fyrst um sinn þegar við vorum að glíma við þennan heimsfaraldur og aðstæðurnar sem honum fylgja var auðvitað markmiðið að koma þjóðinni einfaldlega í skjól með bólusetningu. Stjórnvöld og ríkisstjórnin stóð sig vel í því verkefni og það gerði almenningur líka. Við höfum sem þjóð blessunarlega ekki þurft að glíma við að almenningur vilji ekki taka þátt og þiggja bóluefni. Sóttvarnayfirvöld hafa sömuleiðis staðið vaktina allan tímann og gert það vel, en hlutverk þeirra er hins vegar afmarkað og takmarkað.

Ég er þeirrar skoðunar að svarið við heimsfaraldri hafi verið bólusetningin og það sé enn svarið. En eftir stendur að við búum engu að síður við takmarkanir svipaðar og hjá þeim þjóðum og löndum þar sem bólusetningarhlutfallið er langtum lægra. Ástæðan er þol Landspítalans og á þeirri stöðu ber auðvitað ríkisstjórnin ábyrgð og enginn annar.

Forseti. Mig langaði til að nefna hér að það er alvarlegt mál að þing hafi ekki verið að störfum síðan 13. júní og fram til 1. desember þegar staðan í heimsfaraldri var sú sem hún var og viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru þau sem voru. Hæstv. heilbrigðisráðherra rakti tímalínuna áðan: 26. júní eru allar samgöngutakmarkanir felldar úr gildi, 25. júlí er aftur hert, þing ekki starfandi 3. september eru nýjar takmarkanir, hraðpróf, 15. september, 20. október o.s.frv., aftur í nóvember. Allan þennan tíma er þing ekki starfandi. Það er fjarverandi, og um leið er eftirlit með ríkisstjórninni það einnig, mjög veikt. Auðvitað getur löggjafinn ekki stigið inn í einstakar aðgerðir og það er ekki hlutverk þingsins. En hlutverk þingsins er að hafa eftirlit. Það er ekki bara réttur þingsins að hafa eftirlit með ríkisstjórninni, það er skylda þingsins að fara með þetta hlutverk. Þess vegna er gagnrýnivert að þegar ný bylgja fer af stað og við sjáum sóttvarnaaðgerðirnar taka við sér að nýju þá hafi eftirlitsaðilinn ekki verið að störfum. Þar eru kosningar að hausti stór og veigamikil ástæða. Þegar hinar fordæmalausu aðstæður eru fyrir löngu orðnar hluti af daglegu lífi okkar verður stjórnin að taka þátt í því að Alþingi geti sinnt hlutverki sínu. Þar hefur verulega skort á.

Ég vil þess vegna leggja til að verklag hæstv. heilbrigðisráðherra verði annað en verið hefur allan faraldurinn, að standa fyrir utan ráðherrabústaðinn og þylja upp minnisblöð um aðgerðir næstu vikna án samtals við atvinnulíf, skólana í landinu, jafnvel heilbrigðisstofnanir og án samtals við þingið sjálft. Það er einfaldlega óheilbrigt verklag þegar tíminn er orðinn þetta langur. Þá þarf auðvitað að ræða mjög alvarlega hver skurðpunkturinn er milli sóttvarnaaðgerða og efnahagsaðgerða, hver skurðpunkturinn er milli sóttvarnaaðgerða og félagslegra þátta. Þegar við ræðum sóttvarnaaðgerðir eftir allan þennan tíma, þjóðin er kominn með bólusetningu og við erum svo lánsöm að við erum farin að þiggja þriðju bólusetninguna, þá þarf að ræða heildarmyndina. Heilbrigði, vissulega, ég ætla alls ekki að undanskilja heilbrigðið, vitaskuld ekki, en það þarf líka að ræða efnahaginn og atvinnuna, félagslegar aðstæður fólks, aðstæður fjölskyldna með ung börn í sóttkví. Þetta er stór hluti þess fólks sem er í sóttkví í dag, litlir krakkar sem komast ekki í skólann. Heima sitja ungir skólakrakkar í sóttkví sem hefur lamandi áhrif á líf þeirra og auðvitað lamandi áhrif á atvinnu foreldranna. Mér finnst erfitt að horfa upp á að stjórnvöld séu með sama þrönga sjónarhornið í verkefni sínu og sóttvarnayfirvöld. Sóttvarnayfirvöld einblína á þann þátt en hlutverk stjórnvalda er auðvitað annað. Ríkisskuldir bólgna út.

Ég sé að ég er líka að brenna inni á tíma þannig að ég ætla að fá að ljúka máli mínu á þeim orðum að við þurfum skýrari mynd. Bólusett þjóð á að geta leyft sér það að nálgast verkefnið til lengri tíma litið en ekki bara til tveggja og þriggja vikna.