sóttvarnaraðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Fyrst vil ég óska hæstv. heilbrigðisráðherra til hamingju með embættið og óska honum velfarnaðar. Það hefði verið betra að eiga orðastað beint við hæstv. forseta við þetta tilefni en ekki með því formi sem viðhaft er við þessa umræðu. En ég vona að næst þegar ráðherra skilar skýrslu um þetta mál verði það gert með sama fyrirkomulagi umræðna og þegar leið á liðið kjörtímabil, þ.e. að það verði tekið til skoðunar og vísað til hæstv. forseta. En eftir tvö ár af aðgerðum finnum við okkur í þeirri stöðu að það þarf sérstaklega að færa rök fyrir því að fólk njóti frelsis og mannréttinda. Ekki að það sé meginreglan sem þarf að færa rök fyrir því að víkja frá. Nú þegar styttist í að kórónuveiran hafi verið hluti af samfélaginu í tvö ár verðum við að spyrna við fótum þegar talað er fyrir því að skipta fólki í hópa út frá því hvort það hafi verið sprautað tvisvar eða þrisvar sinnum. Saga Evrópu á fyrri hluta liðinnar aldar á að vera okkur í fersku minni. Frelsið tapast nefnilega sjaldnast allt í einu. Við horfum nú á fréttir frá löndum þar sem þessi saga ætti að vera mönnum í sérstaklega fersku minni þar sem horft er til þess að útiloka óbólusetta frá almannarýmum, svo að eitt dæmi sé nefnt. Er öll saga þekking og reynsla fyrri tíma gleymd í þeim efnum?
Með þessu er ég ekki að segja að þeir sem höndla um ákvarðanir séu illa innrættir eða illa meinandi, alls ekki. Það eru allir að reyna sitt besta. En vegferðin hófst í mikilli óvissu, óvissu um alvarleika veirunnar, óvissu um hvernig gengi að þróa bóluefni, hver eftirköstin yrðu fyrir þá sem veikjast og áfram mætti telja. Þessi óvissa er miklu minni í dag. Upplýsingarnar og þekkingin meiri og hér á Íslandi er mikill meiri hluti þjóðarinnar fullbólusettur eða það sem til skamms tíma var kallað að vera fullbólusettur, en sú skilgreining virðist vera komin á fleygiferð.
Það er stjórnvalda að horfa á heildarmyndina. Það er sóttvarnalæknis að greina stöðu sóttvarna og gera tillögur þar að lútandi. Í hartnær tvö ár hafa stjórnvöld útvistað ákvörðunum til sóttvarnalæknis sem er í engu samhengi sanngjarnt, hvorki gagnvart sóttvarnalækni né heldur þjóðinni. Sóttvarnalæknir hefur raunar reglulega minnt á að það sé annarra að taka ákvörðun út frá stóru myndinni. Nýr heilbrigðisráðherra verður að hafa þrek og þor til að taka fleiri sjónarmið með í reikninginn en gert hefur verið hingað til og ég hef trú á að það verði raunin. Fyrstu aðgerðir hæstv. ráðherra, hvað liðskiptaaðgerðir á einkastofum varðar, gefa ágæt fyrirheit um að horfið verði frá þeirri marxísku stefnu sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra viðhafði. En það að ýta frá sér ábyrgð á stefnumörkun eins og ríkisstjórnin hefur gert undanfarin tæp tvö ár getur ekki gengið lengur.
Ég skora á nýjan heilbrigðisráðherra að horfa á ákvarðanir tengdar Covid-veirunni út frá víðara sjónarhorni en gert hefur verið. Skaðinn verður nefnilega víðar en hjá þeim sem fá í sig veiruna, veiruna sem sem betur fer veldur ekki alvarlegum áhrifum hjá langflestum sem fá hana í sig. Það má segja að þeir sem mest hafa fengið að finna fyrir áhrifum aðgerða vegna veirunnar hafi búið við minnstar líkur á alvarlegum veikindum, ungt fólk á skólaaldri alveg sérstaklega. Stúdentar eru að útskrifast án þess að hafa náð einu einasta heila skólaári án takmarkana og inngripa. Það hefur áhrif. Atvinnurekendur hafa verið því undirorpnir að fyrirvaralítið sé rekstrarforsendum fyrirtækja gjörbreytt. Einyrkjar hafa farið sérstaklega illa út úr þessu og sýnu verst þeir sem voru svo óheppnir að hafa nýlega hafið rekstur þegar aðgerðir stjórnvalda gegn veirunni hófust.
Ítalska landlæknisembættið gaf út áhugaverða skýrslu 5. október sl. þar sem fram kom að af þeim rúmlega 130.000 sem látist hafa með veiruna í sér á Ítalíu hafi 97,1% verið með einn til fimm undirliggjandi sjúkdóma. Við ættum því að vita hverja þarf að verja. Verjum þá sem viðkvæmir eru en lofum öðrum hlutum samfélagsins að ganga sinn vanagang eins og nokkur kostur er.
Herra forseti. Þegar sú tilfinning vaknar að aðgerðir séu aðgerðanna vegna, til að gera eitthvað, dofnar samstaðan hratt. Það þykir t.d. mörgum undarlegt að nú megi hálffylla sal leikhúsa af áhorfendum með glænýtt Covid-próf upp á vasann. Áhorfendur fá hins vegar ekki að kaupa sér kók í hléi en leikhúsið má gefa gestum vatn á sama stað og kókflaskan hefði verið afhent.
Staða Landspítalans er síðan kapítuli út af fyrir sig. Það er með hreinum ólíkindum að núna þegar við erum búin að vera í þessu ástandi í hartnær tvö ár þá miði aðgerðir að því að spítalinn ráði við þau smit sem koma upp og þá sem verða fyrir alvarlegum áhrifum af því að fá veiruna í sig. Þetta varð mér tilefni til að skrifa grein undir yfirskriftinni Sjö ár í höftum þar sem ég benti á að ef spítalinn ræður ekki við nema rétt um 100 smit á dag þá tekur það okkur sjö ár að koma upp hjarðónæmi á grundvelli smita í samfélaginu. Sóttvarnalæknir kom í viðtal nokkrum dögum síðar og sagði að þetta gæti tekið um níu ár. Ég vil bara segja hér við hæstv. heilbrigðisráðherra: Það verður engin sátt um það í íslensku samfélagi að við horfum fram á margra ára tímabil þar sem stigið er inn og þrengt að atvinnulífinu með ófyrirsjáanlegum hætti. Við verðum að losna út úr þeim farvegi. Og það að ríkisstjórnin sé ekki búin að koma málefnum spítalans til betri vegar hvað þetta varðar, á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru síðan þetta ástand brast á, er með hreinum ólíkindum og raunar ámælisvert.
Nú styttist í að hver þjóðin á fætur annarri snúi af þeirri braut sem vestrænar þjóðir hafa verið á. Við skulum vera þar í fararbroddi, snúa til skynsamlegri leiðar hið fyrsta og læra að lifa með þessari veiru í stað þess að leyfa henni að undiroka samfélagið.