152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

sóttvarnaraðgerðir og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:40]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, til hamingju með starfið. Ég vænti mikils af honum og hlakka til samstarfsins við hann.

Virðulegi forseti. Ég hef tekið þátt í mörgum umræðum um þessi mál og mín skilaboð eru enn þau sömu þegar við ræðum sóttvarnir: Stöndum saman gagnvart þjóðinni, ríkisstjórnin og þing. Þar á ég við auðvitað eftir eðlileg skoðanaskipti hér í þingsal og ríkisstjórn og þau hafa verið góð. Þau má auðvitað alltaf bæta líka. Það er mikið alvörumál að skerða frelsi almennings, takmarka atvinnufrelsi, menningar- og skólastarf. Eðlilega má aldrei skerða frelsi meira en nauðsyn krefur. En þolmörkum heilbrigðiskerfisins og starfsfólks þess má þó aldrei misbjóða. Takmarkanir gagnvart almenningi verða alltaf að taka mið af getu heilbrigðiskerfisins. Kórónuveirufaraldurinn hefur bráðlega staðið í tvö ár og mikil þreyta komin í þjóðina og umræðuna. Ekki liggur fyrir í dag hvort við erum komin að enda þessa ógnarlega faraldurs eða stöndum enn í fyrsta skrefinu og enn sé löng ganga fyrir höndum.

Virðulegur forseti. Það eru því enn sömu skilaboðin frá mér: Ræðum viðbrögð við faraldrinum, skiptumst á skoðunum en komum fram gagnvart þjóðinni sem góð samtaka fyrirmynd. Það er fátt sem mun veikja aðgerðir okkar meira en sundrung og misvísandi skilaboð stjórnvalda. Ég sendi þríeykinu og heilbrigðisstarfsfólki þakkir fyrir þeirra störf á miklum og löngum álagstímum. Ég ber virðingu fyrir störfum þeirra.