152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

mannabreytingar í nefndum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Framsóknarflokks um mannaskipti í nefndum, samanber 1. mgr. 16. þingskapa, þannig að Ágúst Bjarni Garðarsson taki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í stað Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur og Líneik Anna Sævarsdóttir taki sæti Þórarins Inga Péturssonar í umhverfis- og samgöngunefnd. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.