152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

um fundarstjórn.

. mál
[15:07]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að taka heils hugar undir orð hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar. Hér er um gríðarlega mikilvægt þjóðaröryggismál að ræða. Þjóðaröryggisráð kom saman að því ég best veit í ágúst síðastliðnum og þingið fær þetta mál inn á dagskrá í dag. Stjórnvöld hafa verið með þetta í fanginu í átta vikur. Þau verða að vera búin að semja í síðasta lagi næstkomandi miðvikudag, eftir tvo daga, ellegar þarf þingið að grípa í neyðarhemilinn. Hvað er að frétta? Þetta mál sem stjórnvöld, ríkisstjórnin metur sem neyðarhemil er aftast á dagskrá dagsins í dag. Þau setja þetta ekki einu sinni fyrst á dagskrá þessa mánudags heldur aftast á dagskrána. Ég átta mig ekki alveg á þessu kæruleysi, virðulegur forseti.