152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

um fundarstjórn.

[15:08]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir orð hv. þingmanna sem töluðu á undan mér. Mér finnst þessi atburðarás öll lýsa miklu kæruleysi, sinnuleysi í garð þessa mikilvæga máls og um leið undirstrika það hvernig ríkisstjórnin, enn og aftur, er að umgangast þingið. Það tekur ekki lengur neinu tali hvaða viðhorf birtast æ ofan í æ af hálfu ríkisstjórnarinnar þegar við erum að ræða mikilvæg mál, grundvallarmál, mál sem snerta innviði þjóðar, öryggi þjóðar o.s.frv. Það mun ekki standa á Viðreisn að afgreiða málið ef það er gríðarlega mikilvægt út frá þjóðaröryggissjónarmiðum. Það mun ekki stranda á okkur. En ég biðla til ríkisstjórnarinnar og ég biðla til forseta þingsins að fara að vanda vinnubrögð. Ég biðla til forseta þingsins að þrýsta á ríkisstjórnina að sýna meiri virðingu gagnvart þinginu en verið hefur. Þetta er gríðarlega stórt mál og við þurfum tíma til þess að fara yfir það. Við þurfum að vanda okkur því hagsmunir þjóðarinnar allrar eru miklir og þetta er ekki mál sem ríkisstjórnin getur haldið hjá sér fram á síðustu fimm mínútur.