152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

desemberuppbót til lífeyrisþega.

[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál upp. Það er auðvitað rétt, eins og kom fram hjá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra í síðustu viku, að ekki er gert ráð fyrir slíkri eingreiðslu í fjárlagafrumvarpinu. Ég benti á það hér síðast að hins vegar sé gert ráð fyrir því að greiðslur til örorkulífeyrisþega taki meiri hækkun en venjan hefur verið á undanförnum árum, þ.e. prósentustigi umfram þá hækkun sem venjan hefur verið, sem nemur u.þ.b. 800 milljónum. Síðan vil ég líka benda á að samkvæmt því kerfi sem við búum við fá lífeyrisþegar desemberuppbót.

Eitt af því sem þyrfti auðvitað að velta fyrir sér er að munurinn á þessum kerfum er enn þá sá að til að mynda þarf að taka sérstaka ákvörðun á hverju ári um desemberuppbót atvinnuleitenda. Hún er ekki bundin í kerfið eins og er hjá lífeyrisþegum. Ég dreg þetta fram af því að ég tel svo mikilvægt, og ég veit að hv. þingmaður er mér sammála um það, að við nálgumst þessi mál einmitt út frá þeim sjónarmiðum að þörf er á heildarendurskoðun á kerfinu.

Við gripum til ákveðinna ráðstafana sem alþingismenn voru sammála um hér á síðasta kjörtímabili og þá er ég að vitna til þess að dregið var úr skerðingum vegna atvinnutekna og dregið var úr skerðingum milli bótaflokka. Samt sem áður er það svo, þó að þetta hafi verið breytingar sem vissulega skiluðu kjarabótum upp á 4 milljarða, að við erum samt með kerfi sem stenst ekki skoðun.

Hv. þingmaður spyr og ég segi það bara hér: Fjárlögin eru að sjálfsögðu til þinglegrar meðferðar núna og ég veit að þetta verður tekið til umræðu innan fjárlaganefndar eins og ýmis önnur þjóðþrifamál. Ég held að það sé svo að við tökum bara afstöðu til þeirrar vinnu sem kemur frá fjárlaganefndinni. Ég horfi hins vegar til þess og ítreka það að ég held að við hv. þingmaður séum sammála um (Forseti hringir.) að þessarar endurskoðunar er þörf og kerfið eins og það er núna mætir ekki þeim kröfum sem við gerum í nútímasamfélagi (Forseti hringir.) til sanngjarns örorkulífeyriskerfis.