desemberuppbót til lífeyrisþega.
Herra forseti. Hv. þingmaður veit eins vel og ég að við erum að sjálfsögðu að reka ríkissjóð í töluverðum halla. Þess vegna skiptir verulega miklu máli að við sjáum hvernig við getum horft fram á veginn með það að ná þeim halla niður. En ég get hins vegar tekið undir með hv. þingmanni að það er mikilvægt að við horfum sérstaklega til kjara örorkulífeyrisþega nú sem endranær. Þess vegna var ráðist í það að leggja til viðbótarhækkun á þennan hóp og ekki aðra. Þess vegna höfum við verið að beina fjármunum til þess að draga úr skerðingum. Ég lít svo á að málið sé statt hjá fjárlaganefnd sem mun taka þetta til skoðunar og ég veit að mun taka það til skoðunar hvort forsendur séu til að grípa til frekari ráðstafana.