152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

leiðrétting á kjörum lífeyrisþega.

[15:23]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hún endurspeglar nákvæmlega það sem ég hef verið að segja. Hér kemur hv. þingmaður upp og talar um skerðingar í kerfinu og það er nákvæmlega það sem ég hef verið að tala um hér, að við erum með kerfi þar sem hver viðbótarhækkun skerðir ýmist aðra bótaflokka eða aðrar tekjur. Er hv. þingmaður sammála mér um að endurskoða eigi þetta kerfi sem hún talar um hér í einhverjum háðungartón, að það eigi að fara í heildarendurskoðun? Finnst hv. þingmanni það ekki mikilvægt þegar hún stendur hér einmitt og talar um nákvæmlega það sem er að í kerfinu, sem eru þessar innbyrðis skerðingar? Það er auðvitað nokkuð sem við þurfum að ráðast í og hefur verið nákvæmlega það sem hefur verið forgangsatriði með því sem var gert á síðasta kjörtímabili, bæði gagnvart skerðingum í atvinnutekjum og innbyrðis skerðingum bótaflokka.

Þetta höfum við hv. þingmaður auðvitað margoft rætt. Hv. þingmaður getur auðvitað rætt desemberuppbótina, sem nemur 64.000 kr. fyrir öryrkja sem búa einir, en tekur einmitt skerðingu vegna þess að kerfið er þannig uppbyggt. Ég ætla ekki að hika við að segja: Já, mér finnst mikilvægt að endurskoða þetta kerfi. Það kann vel að vera að hv. þingmaður sé ósammála mér og þá er það bara þannig. Ég vil líka benda á það sem ég sagði áðan í fyrra svari til hv. þm. Loga Einarssonar, að af hálfu stjórnvalda er lögð til viðbótarhækkun til örorkulífeyrisþega vegna þess að við viljum koma til móts við þann hóp. Málið er nú til þinglegrar meðferðar hjá fjárlaganefnd og ég benti á það hér áðan og get gert það aftur að hún mun væntanlega taka þetta til skoðunar.