152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

leiðrétting á kjörum lífeyrisþega.

[15:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður vill endurskoða kerfið því að það er mikil þörf á því að reyna einmitt að skapa þverpólitíska samstöðu um það hvernig við viljum hafa þetta kerfi. (Gripið fram í.)

Herra forseti. Eins og fram kom í máli mínu áðan endurspeglast skýr vilji ríkisstjórnarinnar til þess að horfa sérstaklega til þessa hóps í því fjárlagafrumvarpi sem hér er til meðferðar. Hv. fjárlaganefnd er með það til skoðunar og getur tekið afstöðu til frekari úrbóta á því sviði í þinglegri meðferð. (Gripið fram í: Svarið var?)