152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

raforkuöryggi.

[15:31]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er margt í máli ráðherra sem ég er nokkuð ánægð með. Hann viðurkennir, og mér finnst það heiðarlegt, að það hafi verið ákveðinn skortur á athygli á þessum málum. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra, þar sem ég þekki hann ágætlega, til dáða í þessu efni. Ég hef ekki, frekar en hann, farið um land allt í kjördæmavikunni á síðustu árum og áratugum án þess að raforkumálin séu til umræðu. Ég hef nefnt Suðurnesin, Vestfirði og Eyjafjörðinn. Auðvitað er þetta þegar upp er staðið á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna sem nú eru. Þannig er það bara. Þess vegna fagna ég því ef loksins á að fara að taka svolítið til hendinni og ég vil hvetja ráðherrann áfram til dáða. Hér verða að vera undir sjálfbær sjónarmið, græn orka, grænar fjárfestingar, flutningsöryggi, öryggi fyrir fólkið okkar. Þetta er spurning um jöfn tækifæri og jöfn búsetuskilyrði, kæri forseti.

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvað ætlar ráðherrann sjálfur að gera? Hver verða hans fyrstu skref í embætti til að tryggja að flutningsöryggi verði betra (Forseti hringir.) þannig að það verði ekkert vafamál hjá fólkinu í landinu hvort (Forseti hringir.) jólasteikin fái að vera í ofninum án þess að rafmagn slái út á mörgum heimilum landsins?