152. löggjafarþing — 9. fundur, 13. des. 2021.
friðun Dranga í Árneshreppi.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið sem var nú kannski ekki innihaldsmikið. Þá ætla ég að koma með mjög afmarkaða spurningu: Kemur til álita, hæstv. ráðherra, að ráðherrann gefi út yfirlýsingu þess efnis að áhrifa friðunarinnar gæti einungis innan jarðarmarka Dranga?