152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

Garðyrkjuskólinn á Reykjum.

[15:53]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir áhugann á málefnum garðyrkju, það er vel. Oft hefur verið talað í þessum sal um mikilvægi garðyrkju og að við séum sjálfbær sem þjóð hvað grænmetisframleiðslu varðar. Og við þurfum á þessum skóla að halda. Hér nefnir ráðherra sömuleiðis myndarskap og ég ætla bara að fá að segja það í hreinskilni að hann hefur ekki sést á Reykjum í Ölfusi í á annan tug ára. Þar hefur ekkert með myndarskap að gera. Þar er ekki gert við nokkurn skapaðan hlut. Þar fækkar bestu kennurum í garðyrkju á Íslandi. Þeir eru flúnir, þeir eru að fara annað. Ég fagna því mjög að hér ætlar ráðherra að koma að þessum málaflokki af myndarskap. Það er mín skoðun að starfsmenntanám eigi ekki heima í háskóla eins og þarna var reynt að gera. (Forseti hringir.) Ég ítreka spurninguna: Ætlar ráðherra að beita sér fyrir því að á Reykjum verði sjálfstæður garðyrkjuskóli á Íslandi?