Garðyrkjuskólinn á Reykjum.
Virðulegi forseti. Ég deili þeirri skoðun með hv. þingmanni, eins og mér heyrist hún segja hér, að það hafi ekki verið skynsamlegt skref á sínum tíma þegar Garðyrkjuskólinn varð hluti af Landbúnaðarháskóla Íslands við þáverandi sameiningu. Ef mig misminnir ekki þá kom það inn á síðustu metrum þess sameiningarferlis að Garðyrkjuskólinn færi inn í Landbúnaðarháskóla Íslands. Við deilum þeirri skoðun, ég og hv. þingmaður, að það er hægt að byggja upp garðyrkjunám af myndarskap og við deilum líka þeirri skoðun að það er hægt að byggja upp í Hveragerði af myndarskap. En hver sem lendingin verður nákvæmlega í því þá getur það hvort sem er verið í sjálfstæðum skóla eða undir og í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ég hyggst, eins og ég sagði áðan, fara og hitta alla hlutaðeigandi aðila; bæjarstjórn, forsvarsmenn atvinnulífs, forsvarsmenn fjölbrautaskóla og aðra, vegna þess að markmiðið bæði hjá núverandi menntamálaráðherra og þess sem fyrir var, þáverandi hæstv. menntamálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur, er að það rísi öflugt nám í garðyrkju og að Reykir, og sú starfsemi sem þar er, verði reknir af myndarskap.