152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

ákvörðun nr. 388/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

165. mál
[16:09]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 388/2021 frá 10. desember 2001. Með ákvörðuninni er gerð breyting á IX. viðauka við EES-samninginn með því að fella inn í hann reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2021/168 sem varðar fjárhagslegar viðmiðanir í fjármálagerningum og hvað skuli gilda ef þær eru ekki lengur gefnar út. Auk þess eru felldar inn í samninginn tvær framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem útfæra nánar ákvæði reglugerðarinnar.

Í upphafi árs 2022 stendur til að hætta að birta LIBOR-vexti og millibankadagvexti í evrum sem eru vaxtavísitölur sem lagðar eru til grundvallar í fjölmörgum samningum á fjármálamarkaði. Reglugerðirnar sem ákvörðunin nær til fjalla um hvað skuli miða við í staðinn ef samningar byggjast á annarri hvorri viðmiðun og samningsaðilar komu sér ekki saman um aðra viðmiðun til að styðjast við. Upptaka og innleiðing reglugerðanna dregur því úr óvissu og hugsanlegri röskun á viðskiptum og er áríðandi að veita gerðunum gildi hér á landi fyrir áramót áður en hægt verður að birta þessar vaxtavísitölur. Tímanleg upptaka hefur sérstaklega mikla þýðingu fyrir samstarfsríki Íslands í EES-samstarfinu, Liechtenstein, því að stór hluti samninga á fjármálamarkaði þar vísar til LIBOR-vaxta í svissneskum frönkum.

Ein af umræddum reglugerðum, reglugerð 2021/168, krefst lagabreytingar hér á landi. Fjármála- og efnahagsráðherra mun leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021, fyrir áramót til að veita reglugerðinni gildi hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir að innleiðing gerðarinnar hafi veruleg áhrif á stjórnsýslu eða fjárhag ríkisins.

Virðulegi forseti. Ég legg því til að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.