loftferðir.
Frú forseti. Við eigum eftir að leggjast yfir málið í umhverfis- og samgöngunefnd en ég held við höfum náð í vor að gera málið eins gott og það gat orðið. En ósköp þurfti mikla orku til þess. Ósköp þurfti stjórnarandstaðan að beita miklu afli innan nefndar og utan til að fá stjórnarliða til að átta sig á því að þeir þyrftu bara að samþykkja þessa einföldu breytingartillögu frá hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson um að undanskilja íslenska ríkisborgara ákvæðum laganna.
En það sem situr eftir hjá mér eftir þessa reynslu er að þetta er sennilega eitt skýrasta dæmið um að stjórnarliðar hafa ekki reynt að vinna málum sínum meðbyr í baráttunni gegn Covid, hafa ekki reynt að sýna að við séum öll saman í liði. Þvert á móti voru dregnar upp flokkspólitískar línur í máli sem engin ástæða var til að gera flokkspólitískt. Stjórnarliðar, undir gunnfána eflingar Alþingis, sem reistur var í tíð síðustu ríkisstjórnar, stóðu þvert gegn öllu sem stjórnarandstaðan lagði til í þessu máli þar til á síðustu metrunum. Það var mikil orka sem umhverfis- og samgöngunefnd þurfti að eyða í þetta mál sem hefði verið hægt að leysa á einum fundi í staðinn fyrir tíu eða tuttugu, sem tók að leysa það. (Forseti hringir.) Stjórnarliðar hefðu kannski getað splæst þeirri orku í að klára hálendisþjóðgarð eða rammaáætlun, en í staðinn völdu þeir að berja höfðinu við þennan stein. Af hverju ætli það sé?