152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:13]
Horfa

vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Frumvarpið er til komið vegna endurmats stjórnvalda á áætlunum og viðbúnaði í kjölfar orðinna og mögulegra breytinga á eignarhaldi fjarskiptainnviða, svo sem fjárfestinga erlendra aðila í grunnvirkjum og fjarskiptaþjónustu hér á landi. Það var undirbúið í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Fjarskiptastofu.

Ljóst er að fjarskiptanet og fjarskiptaþjónusta eru undirstaða margvíslegrar samfélagslegrar og efnahagslega mikilvægrar starfsemi. Það er skylda ríkisvaldsins að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja sem best öryggi og áreiðanleika fjarskipta á landinu á hverjum tíma með tilliti til þjóðaröryggis og almannahagsmuna. Starfsemi mikilvægra innviða samfélagsins, þar á meðal ríkisins, byggist m.a. á virkni og öryggi fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu sem varða því þjóðaröryggi. Líta verður svo á að öryggi ríkisins sé fólgið í hugtakinu þjóðaröryggi. Fjarskiptasamband sem varðar varnarmál og fjarskiptasamband við útlönd telst einnig varða þjóðaröryggi. Þá eru almannahagsmunir í fjarskiptum bæði fólgnir í því að þjónustan sé tiltæk þegar hennar er þörf með vísan til hugtaksins alþjónustu í fjarskiptum og mikilvægi þess að ná sambandi við neyðarþjónustu 112, svo og leynd fjarskipta. Í frumvarpinu er byggt á því að almannaöryggi, að því er viðkemur fjarskiptum, rúmist innan hugtaksins almannahagsmunir.

Markmið frumvarpsins er að stuðla að vernd almannahagsmuna og auknu þjóðaröryggi á sviði fjarskipta. Telja má að erlent eignarhald fjarskiptainnviða og fjarskiptafyrirtækja auki líkur á útvistun afmarkaðra þátta í starfsemi þeirra, svo sem í hagræðingarskyni eða vegna samlegðaráhrifa. Útvistun fjarskiptafyrirtækja út fyrir íslenska lögsögu getur að einhverju leyti torveldað eftirlit Fjarskiptastofu, auk þess sem áhættusnið rekstraraðila stækkar óhjákvæmilega við slíka útvistun. Frumvarpinu er ætlað að mæta framangreindum áskorunum og með því auka áfallaþol fjarskipta á Íslandi.

Með frumvarpinu eru lagðar til eftirtaldar breytingar á gildandi fjarskiptalögum:

Í fyrsta lagi verði gerðar ítarlegri kröfur til fjarskiptafyrirtækja um áhættustýringu og viðbúnað hvað varðar útvistun rekstrarþátta út fyrir íslenska lögsögu. Horft var til svonefndrar kóðatilskipunar ESB á sviði fjarskipta og fyrirmynda í norrænum rétti við útfærslu ákvæða frumvarpsins sem þetta varða. Meðal annars verði gerð sú krafa að fjarskiptafyrirtæki geti fært starfsemi sem útvistað hefur verið út fyrir íslenska lögsögu inn í íslenska lögsögu komi upp þær aðstæður að hætta sé talin á að rekstrarsamfellu fjarskiptanetsins eða fjarskiptaleynd stafi ógn af útvistuninni, sem ekki er brugðist við með öðrum hætti og varðar almannahagsmuni eða þjóðaröryggi. Þá þarf fjarskiptafyrirtæki að geta endurreist fljótt fjarskiptaþjónustu sem rofnar vegna útvistunar út fyrir íslenska lögsögu.

Í öðru lagi verði lögfest tilkynningarskylda fjarskiptafyrirtækja gagnvart Fjarskiptastofu um nýjar upplýsingar eða annað sem tengist áfallaþoli fjarskiptaneta eða fjarskiptaþjónustu og varðar almannahagsmuni eða þjóðaröryggi.

Í þriðja lagi eru ákvæði um að eftirlit Fjarskiptastofu með framkvæmd fjarskiptalaga verði styrkt.

Í fjórða lagi er síðan lagt til að lögfest verði heimildarákvæði er lýtur að staðsetningu fjarskiptaneta. Ráðherra geti þá í reglugerð kveðið á um að kerfi og búnaður í fjarskiptanetum, sem teljast mikilvæg með tilliti til almannahagsmuna eða þjóðaröryggis, og er nauðsynlegur fyrir virkni eða stjórnun fjarskipta innan landsins skuli staðsettur í íslenskri lögsögu. Í reglugerð verði tekið mið af umsögnum Fjarskiptastofu og ríkislögreglustjóra á grundvelli áhættumats þeirra. Jafnframt megi í reglugerð kveða á um að rekstur slíks búnaðar og kerfa skuli fara fram í íslenskri lögsögu, þasr með talin umsjón og eftirlit með virkni og ástandi fjarskiptaneta. Þar býr m.a. að baki mikilvægi þess að í landinu sé á hverjum tíma nauðsynleg þekking og geta til endurreisnar þjónustu ef á reynir.

Gildandi löggjöf takmarkar ekki útvistun starfsemi fjarskiptafyrirtækja út fyrir íslenska lögsögu, þar á meðal staðsetningu búnaðar og kerfa fjarskiptaneta eða rekstur þeirra. Slík þróun er þegar hafin og drifin áfram af tæknilegum möguleikum og fjárhagslegu hagræði. Endurmat á öryggisráðstöfunum og viðbúnaður á sviði fjarskipta er viðvarandi viðfangsefni okkar. Áhættumat með tilliti til almannahagsmuna eða þjóðaröryggis gæti gefið tilefni til að setja reglugerð á grundvelli ákvæðisins.

Með frumvarpinu eru jafnframt lagðar til breytingar á gildandi lögum um Fjarskiptastofu. Markmið þeirra er að kveða skýrar á um eftirlitsheimildir stofnunarinnar og hlutverk hennar er varðar almannahagsmuni og þjóðaröryggi. Meðal annars verður Fjarskiptastofu heimilt að krefjast upplýsinga um eigendur, keðju eigenda og þá aðila sem raunverulega fara með atkvæðisrétt, stjórnarmenn, framkvæmdastjóra, eftirlits- og stjórnkerfi innan fjarskiptafyrirtækis. Lögfest verði líka heimild til álagningar stjórnvaldssekta vegna brota gegn skyldu til að afhenda réttar og fullnægjandi upplýsingar.

Loks eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Ráðherra geti bundið erlenda fjárfestingu skilyrðum í því skyni að koma í veg fyrir að hún geti ógnað öryggi landsins, gengið gegn allsherjarreglu eða almannaöryggi. Um þessar breytingar var haft samráð við starfandi nefnd á vegum forsætisráðuneytisins um rýni fjárfestinga í þýðingarmiklum samfélagsinnviðum og tengdri starfsemi vegna þjóðaröryggis með vísan í fyrirhugaða framlagningu frumvarps á vorþingi.

Við undirbúning frumvarpsins var horft til sjónarmiða um meðalhóf og jafnræði og hliðsjón höfð af lagaumgjörð á Norðurlöndunum er varðar öryggi fjarskipta. Aðrar Norðurlandaþjóðir hafa á að skipa löggjöf og stofnanaumgjörð sem miðar að því að stuðla að áfallaþoli grunnvirkja, vernd almannahagsmuna og þjóðaröryggi á sviði fjarskipta.

Mati á mögulegum fjárhagslegum áhrifum af samþykkt frumvarpsins fyrir Fjarskiptastofu verður gerð ítarlegri skil í frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti, sem fyrirhugað er að leggja fram í þriðja skipti í næsta mánuði. Umfjöllun um það frumvarp fór fram á síðasta þingi og svipar því að sumu leyti til hluta þessa frumvarps.

Frumvarp þetta er brýnt og með því er stigið mikilvægt skref í að bæta lagaumgjörð um almannahagsmuni og þjóðaröryggi á sviði fjarskipta enda krefst ör þróun í tækni og viðskiptum stöðugs endurmats, viðbúnaðar og öryggisráðstafana af hálfu stjórnvalda.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.