fjarskipti o.fl.
vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta eru bara eðlilegar vangaveltur, spurningar sem ráðuneytið hafði sjálft spurt, hvernig best væri að koma þessu fyrir í löggjöfinni. Það er kannski flókið að skella á beinu lagaákvæði og móta það í dag af því að þetta er kvikur markaður, hlutirnir breytast hratt, tæknin er ör. Við vitum varla hvernig fjarskiptasamskipti verða hér eftir einhver ár. Það var því talið betra að gera þetta með þessum hætti og skýrt er kveðið á um mikilvægi samráðs og víðtæks áhrifamats til að beita henni og koma á þessari reglugerðarheimild. Ég held, eftir það mat sem lagt hefur verið á þetta í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, að það sé skynsamlegt að fara þessa leið. Síðan munum við auðvitað taka til umræðu frumvarp um ný fjarskiptalög í byrjun næsta árs og þá koma þessar spurningar aftur upp. Við erum að reyna að bregðast við hluta þeirra núna, sem við teljum mikilvægt að gera. 2. gr. gengur langt en ég held við förum kannski ekki að beita henni fyrr en annað í löggjöfinni dugar ekki til. Ég tel því að þessu sé betur fyrir komið með heimild fyrir ráðherra um reglugerð.