152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:26]
Horfa

vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, nú erum við komin út í hugmyndir um sölu á innviðum landsins. Við sjáum í löndunum í kringum okkur að grunninnviðir, svo sem fjarskiptakerfi, flugvellir o.fl., eru oft í eigu og rekstri einkaaðila, innlendra sem erlendra, og það er okkar hlutverk að skapa umhverfið, hafa leikreglurnar skýrar og tryggja þjóðaröryggi og almannahagsmuni af öllum mætti. En það er engin ástæða til að ætla að sama fyrirkomulag geti ekki gengið hér á landi og í öðrum löndum.

Hv. þingmaður spyr síðan hvort áætlað sé að áframselja fjarskiptainnviði, eins og ég skildi hann, og hvort þá kikki ekkert inn. Jú, þá fer sama ferli aftur í gang. Ef erlendur aðili ætlar að kaupa er sama málsmeðferð. Þá er það á málefnasviði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, þessi lög sem eru líka hér til umfjöllunar og breytinga varðandi sölu á fjárfestingu erlendra aðila. Þá myndi á ný reyna á stöðvunarheimild hlutaðeigandi ráðherra eða þessi skilyrði ef ákvæði frumvarpsins þar að lútandi verða samþykkt. Hér erum við að tryggja að við getum sett skilyrði á svona sölu en ekki bara sagt nei eða ekki aðhafst neitt.