152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:28]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu og andsvör hingað til. Það er að sjálfsögðu ávallt alvarlegt þegar innviðir þjóða eru seldir. Við getum séð nærtækt dæmi um það. Nýverið varð alþjóðaflugvöllurinn í Kampala í Úganda gjaldþrota, en hann er í eigu Kínverja. Þar er heilt land nú bundið við það hvort Kínverjar vilja að þeir innviðir haldi áfram eða ekki.

Það sem mig langaði hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra um er að í umræðum um fundarstjórn hér í morgun kom fram að það sé langt síðan byrjað var að ræða þessi mál um kaup erlendra aðila á fjarskiptanetum. En ég hjó eftir því að í frumvarpinu, eins og það er lagt fram, er talað um að ekkert samráð hafi verið haft við hagsmunaaðila eða almenning. Ég tel það mjög slæmt og vona að meira samráð verði haft við gerð nýrra laga sem hæstv. ráðherra hefur boðað á nýju ári.

En spurningin sem mig langar að spyrja varðar það að við höfum ekki haft neitt samráð: Hefur verið skoðað hvaða áhrif þessi lög hafa á fjarskiptafyrirtækin sem eru hér í landinu í dag? Til dæmis er í þessum lögum lagt til að hægt verði að banna tæknibúnað frá ákveðnum löndum, tæknibúnað sem þegar er í notkun hér á landi hjá fjarskiptafyrirtækjum.