fjarskipti o.fl.
vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Varðandi það sem hv. þingmaður fór fyrst yfir, þ.e. sölu á innviðum, þá erum við einmitt að bregðast við því með þessu frumvarpi. Við erum að treysta og tryggja áfallaþolið. Og af því að hv. þingmaður tók dæmi frá öðru landi þá erum við að tryggja áfallaþolið fyrir því að eitthvað gæti mögulega komið upp. Varðandi samráð í þessu máli þá hefur tíminn auðvitað verið stuttur. Um hitt frumvarpið, nýja löggjöf, þá hefur auðvitað nú þegar farið fram mikið samráð um hana og mun aftur fara fram í hefðbundinni þinglegri meðferð. Það er mjög mikilvægt að hin nýja löggjöf fái hefðbundna þinglega og góða meðferð. Þess vegna er þetta frumvarp með snörpu yfirbragði, þar kemur fram það allra mikilvægasta sem við teljum áríðandi að komi fram núna þannig að við höfum leið til að grípa inn í ef samningar nást ekki. Og þar liggur línan.
Varðandi síðan spurninguna um áhrif á önnur fjarskiptafyrirtæki, tæknibúnað og annað, þá er það mögulegt ef reglugerðarheimildinni er beitt. Hún er auðvitað vandmeðfarin og það er ekki æskilegt að beita henni án ítarlegs áhrifamats og aðeins ef hún ógnar þjóðaröryggi. Við erum ekki að kippa stoðum sisvona undan því að nýta ýmsa tækni frá ýmsum löndum með einhverri löggjöf hér í þinginu af því við erum hrædd við það. Nei, það þarf að liggja fyrir áhrifamat og áhættugreining á slíku frá Fjarskiptastofu, frá ríkislögreglustjóra og meta þjóðaröryggishagsmuni Íslendinga í hverju einasta skrefi sem við stígum þegar við erum að takmarka sölu hjá einkaaðilum eða nýtingu á tækni.