152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:37]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það var árið 2005 sem mistökin voru gerð þegar grunnnet Símans var selt. Samfylkingin var á móti þeirri aðgerð og þeirri sölu og vildi láta slíta í sundur og halda grunnnetinu í opinberri eigu en stjórnarliðar þáverandi, þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og þeirra ráðherrar sögðu að það væri ekki hægt að slíta þetta í sundur. Þeir lögðust í miklar ræður hér í þingi til að rökstyðja að það væri ekki hægt að slíta þetta í sundur en höfðu augljóslega rangt fyrir sér því að núna erum einmitt við að tala um sölu Mílu.

Við erum að tala um innviði sem eru undirstaða fyrir fjarskipti á Íslandi sem voru seldir á sínum tíma, árið 2005, og ég ítreka að það er augljóst að þar hafi mistökin verið gerð og það er þess vegna sem við stöndum í þessari stöðu.

Forseti. Við snúum víst ekki tímanum við til að leiðrétta þau mistök en við getum sett lög og regluverk sem tryggir viðhald, öryggi og heimild yfirvalda til að taka fyrirtækið yfir ef neyðarástand skapast eða einkaaðilinn er ekki hæfur til að sinna svo mikilvægri starfsemi. Það verður að koma í veg fyrir það að eigendur geti af geðþótta eða vegna vanhæfni lamað íslenskt samfélag, farið með fyrirtækið út fyrir lögsögu Íslands eða selt úr landi nauðsynleg tæki til starfseminnar.

En hvers vegna, forseti, er ástæða til að hafa áhyggjur af þessari sölu? Það er vegna þess að Míla er ekki venjulegt fyrirtæki sem engu máli skiptir hverjir eiga eða hvernig er rekið. Rekstur fyrirtækisins varðar íslenskan almenning og öryggi þjóðarinnar. En menn spyrja: Er þetta ekki bara góður díll? Stoðir græða sem eiga um 16% í Mílu og það gera lífeyrissjóðirnir líka. Er þetta þá bara ekki fínt? Það er ástæða til að hafa áhyggjur vegna þess að Míla á stærsta hlutinn í stofnljósleiðara landsins á móti NATO og það er Míla sem sér um rekstur og viðhald allra þráðanna í strengnum. Það eru átta þræðir í strengnum. Míla á fimm, NATO þrjá, en Míla sér um reksturinn á þessu hringneti. Ljósleiðarastrengirnir eru undirstaða flestra fjarskiptakerfa sem notuð er á Íslandi, þar á meðal símkerfisins, farsímakerfisins, Tetra-neyðarfjarskiptakerfis, mikilvægra gagnatenginga fyrir helstu stoðkerfi landsins og almennrar internettengingar landsmanna. Nánast öll tal- og gagnafjarskipti við útlönd fara um ljósleiðaratengingar á landi og síðan um þrjá sæstrengi sem tengja Ísland við umheiminn. Sambandsrof getur gert Ísland að mestu sambandslaust við umheiminn og haft alvarlegar afleiðingar á efnahags-, öryggis-, varnar- og almannahagsmuni, þannig að þetta er stórt mál sem við erum að ræða hér.

Fjárfestingarfélagið Ardian France SA ætlar að kaupa Mílu og við þurfum að gera ríkar kröfur til félagsins sem er með eignarhald á svo mikilvægum innviðum. Míla má ekki fara í hendur fjárfestingarsjóðsins án skilyrða um samfélagsöryggi sem halda. Ef illa fer er það nefnilega almenningur sem verður fyrir skaða og ber tjónið. Vandinn við fjárfestingarsjóði er að þó að við vitum hverjir eiga sjóðinn í dag þá geta aðrir verið komnir í spilið á morgun með einhver önnur markmið og önnur áform en eigendurnir sem ráða för í dag. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12. gr. að ef erlend fjárfesting ógnar öryggi landsins geti ráðherra stöðvað slíka fjárfestingu enda kynni ráðherra ákvörðun sína innan átta vikna frá því að samningurinn er gerður. Samningurinn um sölu á Mílu var gerður 23. október síðastliðinn. Hæstv. ráðherrann hefur því tíma til 17. desember til að stöðva sölu Símans á Mílu ef stjórnvöld telja að salan geti leitt til þess að þjóðaröryggi sé ógnað. Við vitum ekki hvað er verið að tala um við samningaborðið, þar sem er verið að togast á um það hvaða skilyrði þurfa að vera til þess að samningurinn geti gengið í gegn. Við verðum að treysta því að þar sitji við borðið okkar færasta fólk og horft sé út frá hagsmunum almennings en það sé ekki verið að býtta á þjóðaröryggi hér og hag fyrirtækisins þar, því að þetta er mjög mikilvægt mál fyrir okkur Íslendinga.

Í frumvarpinu sem við ræðum hérna er talað um útvistun. Stóra málið, sýnist mér, í þessu frumvarpi er til þess að verja okkur Íslendinga fyrir því tjóni sem gæti orðið ef fyrirtækið útvistar ákveðinni starfsemi eða selur einhver tæki eða fer með úr landi og út fyrir lögsögu Íslands. Ég fæ ekki betur séð, forseti, hvað varðar þau ákvæði sem eru í frumvarpinu og þessa reglugerðarheimild en að þetta sé of veikt. Þetta verður hv. umhverfis- og samgöngunefnd að fara mjög vel yfir til þess að ganga úr skugga um að þessi ákvæði haldi. Síðan eru lagðar skyldur á Fjarskiptastofu og það þarf að fara yfir það hvort þar sé tækniþekking, þar séu fjárveitingar og það sé styrkleiki og möguleiki til að sinna þessu eftirlitshlutverki svo að vel sé. Nefndin þarf að fara yfir áhættuþættina, kalla til sérfræðinga á þessu sviði og kortleggja það hvað getur farið úrskeiðis og hvernig við getum sett undir þá áhættuþætti með þessari lagasetningu sem við höfum tækifæri til að gera núna. En vandinn er auðvitað sá að við höfum örfáa klukkutíma til að ræða þessi mikilvægu mál. Auðvitað telja hv. þingmenn það ekki eftir sér að leggja nótt við dag, en þegar svona mikill flýtir er á málunum er hætta á því að gerð verði mistök sem draga dilk á eftir sér. Það er alvarleiki málsins.

Ég sagði hér áðan, frú forseti, að þessi samningur var gerður 23. október en það var ekki þá sem við fengum fyrst hugmynd um að eitthvað svona gæti verið á döfinni. Við vissum það löngu áður. En það er ekki fyrr en í dag, 13. desember, sem við erum hér í þingsal að ræða frumvarp sem á að verja almannahag. Markmiðið með frumvarpinu er að verja þjóðaröryggi og almannahag vegna þessarar sölu á Mílu til erlendra aðila. Úti um allan heim, eða alla vega ef við lítum til þeirra landa sem við viljum bera okkur saman við, er annaðhvort búið eða verið að semja og samþykkja lög sem verja mikilvæga innviði fyrir erlendum aðilum og við þurfum auðvitað að líta til þeirra. En í hvaða umhverfi er þessi sala að fara í gegn með þessum látum? Lagaumhverfi okkar er mjög veikt. Það er vísu til umræðu og okkur er sagt að það séu að koma hingað inn í þingið heildarlög um mikilvæga innviði frá forsætisráðuneytinu en þau eru ekki komin. Þau lög eru ekki til og það er í skötulíki hvernig lagaumhverfið er, skilgreiningar á því hvað eru mikilvægir innviðir og hvernig við eigum að verja þá o.s.frv. fyrir áhrifum sem eru óæskileg. Fjarskiptalög, já, það er að koma frumvarp um heildarfjarskiptalögin. Við fengum að sjá það í vor eða á síðasta þingi. Stjórnarandstaðan var áhugasöm um að koma þessu mikilvæga frumvarpi í gegn en það voru stjórnarliðar sem á síðustu dögum sópuðu því út af borðinu sjálfir vegna einhverra innbyrðis deilna eða innbyrðis samninga eða hvað það nú var á milli stjórnarflokkanna. Þar voru auðvitað atriði sem skiptu mjög miklu máli og hefði skipt máli að vera með sem lagasetningu í dag. Síðan eru það lögin um fjárfestingar, erlendar fjárfestingar í atvinnurekstri. Þau eru 30 ára gömul, ef ég man rétt. Það hefur ýmislegt gerst á fjarskiptasviðinu og -markaðnum á þeim tíma þannig að það eru líka lög sem þarf að endurskoða.

Þessi sala á innviðum, sem eru undirstaða fyrir fjarskipti á Íslandi, til erlendra aðila, til fjárfestingarsjóðs er að fara fram núna í þessu veika lagaumhverfi rétt áður en að við erum búin að koma því umhverfi í lag og við eigum á einhverjum örfáum klukkutímum, löggjafinn, að meta það hvort þetta frumvarp sem við ræðum hér haldi þegar kemur að þjóðaröryggi og almannahag. Ég gagnrýni því harðlega, forseti, þennan seinagang. Ég átta mig ekki á því af hverju í ósköpunum það þurfti að taka svona rosalega langan tíma að útbúa þetta frumvarp sem er ekki svo stórkostlegt þegar maður flettir því. Ég efast um að það dekki alla áhættuþætti sem við þurfum að vara okkur á. Ég hvet hv. þingmenn sem sitja í umhverfis- og samgöngunefnd til dáða og hvet þau til að kalla sér til liðs allra færustu sérfræðinga á þessu sviði þannig að við getum verið viss um að markmiðin náist um að tryggja þjóðaröryggi og almannahag.