fjarskipti o.fl.
vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Við hv. þingmaður erum kannski ósammála að megininntaki um stöðuna, um erlendar fjárfestingar hér á landi. En ég ætla ekki að fara í þær rökræður hér í dag við hv. þingmann heldur vil ég koma inn á örfá atriði sem hv. þingmanni finnst enn þá vera óljós í málinu. Hv. þingmaður nefndi að allir væru í algjörum skugga varðandi það hvað við værum með á samningaborðinu. Það er auðvitað ekki svo. Þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur farið yfir hvaða markmið við erum með við það samningaborð og það hefur birst í fjölmiðlum og ég veit ekki betur en að hv. þingmaður sitji líka í þjóðaröryggisráði. Ég get þá ítrekað hér í ræðustól þingsins að markmiðin eru þrjú: Í fyrsta lagi að staðsetning búnaðarins í mikilvægum fjarskiptanetum Mílu og rekstur hans sé í íslenskri lögsögu. Í öðru lagi að búnaður í mikilvægum fjarskiptanetum Mílu sé frá framleiðendum í ríkjum sem Ísland á í öryggissamstarfi við eða ríkjum innan EES, og í þriðja lagi að Míla veiti fullnægjandi upplýsingar um þá þætti starfseminnar sem varða þjóðaröryggishagsmuni, raunverulega eigendur félagsins og áform þeirra er varða uppbyggingu og rekstur fjarskiptaneta Mílu. Þessar viðræður hafa gengið vel og ég bind vonir við að tímapressan í málinu fari aðeins að flýta þeim.
Síðan er spurt hvort Fjarskiptastofnun sé nægilega öflug til að sinna eftirliti. Þá langar mig bara að minna á nýleg endurnýjuð lög um stofnunina þar sem skerpt er á hlutverki hennar. Hún hefur nú þegar ríkar heimildir þó að við séum enn að bæta í núna. Við kveðum skýrar á um þessar heimildir. Síðan er spurt að því hvort kveðið sé nógu fast að orði um hvort við séum að koma í veg fyrir útvistun afmarkaðra þátta. Já, það er okkar mat að svo sé. Við byggjum t.d. á fyrirmyndum úr norskri og finnskri löggjöf og við gerum líka ráð fyrir að áhættumat með tilliti til almannahagsmuna og þjóðaröryggis geti gefið tilefni til að setja reglugerð eins og kveðið er á um. Ég vildi bara koma inn á þessa þætti til að skýra mögulega eitthvað sem hv. þingmanni fannst enn þá óljóst.