152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:53]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég kannast ekki við að hafa tjáð mig almennt um erlenda fjárfestingu á Íslandi. Auðvitað skiptir hún miklu máli. En hér erum við að tala um innviði sem eru grunnurinn undir fjarskiptasamskipti og það er stórt mál og það er flóknara þegar þar er komin erlend fjárfesting, ég tala nú ekki um þegar það er fjárfestingarsjóður og hlutir þar ganga kaupum og sölum. Þá þurfum við auðvitað að gæta okkar alveg sérstaklega. Ég vil að slíkir innviðir séu í opinberri eigu, að það séu a.m.k. góð lög og góðar reglur í kringum það hvernig slík starfsemi á að fara fram þannig að gætt sé að þjóðaröryggi og almannahag. En það eru örugglega allir sammála um að það er gott að fá erlendan gjaldeyri inn í landið, það er ekkert að því. En það er ekki það sem við erum að tala um hér. Við erum að tala um þjóðaröryggi og almannahag. Ég hef ekki séð skilyrðin sem verið er að semja um. Ég hef auðvitað heyrt um hver þau eru en ég hef ekki séð þau til að meta þau og gá hvort þau haldi. Þannig er það. Mér finnst það vera veikt, og það má vera að annað komi í ljós þegar nefndin fer að vinna með frumvarpið, að vera bara með reglugerðarheimild þegar talað er um útvistun á starfsemi. Ég vil að það sé fast í lögum að ekki megi fara með svona veigamikla starfsemi út fyrir lögsögu Íslands.