152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:58]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þjóðaröryggisráð hefur fjallað um áformin og síðan um söluna, eins og fram hefur komið hjá hæstv. forsætisráðherra, sem er formaður þjóðaröryggisráðs. Mér finnst það góð hugmynd að nefndin kalli til sín fulltrúa NATO til að fara yfir varnarhlið málsins. Það held ég að sé alveg nauðsynlegt að gera. Ég veit að það hefur verið samtal við NATO en það er ekki nóg að einhverjar fréttir berist af því heldur þarf nefndin að kalla til sín fulltrúa NATO til að fara yfir samningana á milli Mílu og NATO um rekstur strengjanna og þá um leið hvort þeir samningar haldi áfram og erfist yfir til nýju rekstraraðilanna.

Nei, þjóðaröryggisráð hefur ekki verið kallað saman. Ég hef ekki litið í tölvupóstinn nýlega en hættustig almannavarna var sett á í dag og ráðið hefur ekki, svo að ég viti, verið kallað saman út af því.