152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[18:59]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég hef verið nokkuð gagnrýnin á störf þjóðaröryggisráðs. Ég er vonandi þá ekki að kasta rýrð á hv. þingmann, sem er reynslumikil þegar kemur að þessu, enda í minni hluta; ráðið lýtur stjórn forsætisráðherra og utanríkisráðherra er varaformaður. Það er liðið á annað ár síðan umræða um söluna á Mílu kom til greina. Á sínum tíma þegar dreifikerfið var selt var sagt í þessum ræðustól, af forsætisráðherra og þáverandi ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, að þetta ætti að vera í íslenskri eigu. Út af hverju? Ekki endilega út af þjóðernisást einni saman heldur út af þjóðaröryggishagsmunum. Ég hélt því einfaldlega að verið væri að fara yfir þessi mál þegar eignarhaldið væri að fara þarna yfir, ekki síst út frá þjóðaröryggishagsmunum. Ég ætla að koma aðeins að þessu í ræðu minni á eftir.

Það sem ég velti fyrir mér með þjóðaröryggisráðið, af því að hátt í tvö ár eru liðin, er að ég hef saknað þess að sjá frumkvæði af hálfu þáverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og núverandi innviðaráðherra. Mín spurning er: Hafði þáverandi ráðherra og núverandi frumkvæði að því að kynna málið, hvaða hagsmuni væri um að ræða, fyrir þjóðaröryggisráð? Óskaði hann eftir því að farið yrði yfir málið með þetta í huga? Mér finnst það skipta mjög miklu máli að það frumkvæði hafi verið sýnt þaðan þegar kemur að þessu, ekki síst í ljósi þess að fyrr á árinu var mikil umræða um þessi mál. Þó að við værum bara að ræða óvirka innviði var mikil umræða þegar fyrirtækin Sýn og Vodafone seldu sína óvirku innviði. Það var ekkert óeðlilegt við þá sölu af því að þetta voru óvirkir innviðir. En umræðan var engu að síður mikil. Hvað gerum við ef? Svo gerist það að verið er að selja hér virka innviði. Ég hélt einfaldlega að öryggisventlarnir hjá okkur myndu fara af stað.

Mig langar að spyrja: Hafði þáverandi ráðherra (Forseti hringir.) frumkvæði að því að hafa samráð við þjóðaröryggisráð út af þessu? (Forseti hringir.) Og er eitthvað í þessu sem gæti leitt til þess sama og Danir stóðu frammi fyrir á sínum tíma (Forseti hringir.) þegar þeir framseldu leyfi til upplýsinga til Bandaríkjanna, að fara inn í netið hjá sér, fyrir rúmum tveimur árum?