152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[19:02]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst vil ég segja um þjóðaröryggisráð: Þjóðaröryggisráð er samkvæmt lögum samráðsvettvangur. Þar eru þrír ráðherrar, þar er ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæslan, fulltrúi frá björgunarsveitum — hópurinn er þannig samsettur — og svo er einn stjórnarþingmaður og einn stjórnarandstöðuþingmaður. Hugmyndin með þessum þingmönnum þarna inni er sú að hafa tengsl við þingið. En þjóðaröryggisráð er samráðsvettvangur. Þjóðaröryggisráð er ekki stjórn sem er yfir ríkisstjórn Íslands. Það er ekki þannig. Það er því ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á framkvæmdinni algerlega. Það sem gerist á vettvangi þjóðaröryggisráðs er trúnaðarmál, meira að segja er dagskráin trúnaðarmál. Það er til að skapa þá umgjörð að þessir aðilar geti talað algerlega óhindrað og í trúnaði um mikilvæg mál. Ég held að það skipti máli að svo sé.

Það hefur hins vegar mörgum sinnum komið fram hjá hæstv. forsætisráðherra að um þetta mál sérstaklega hefur verið rætt í þjóðaröryggisráði og hæstv. innanríkisráðherra hefur verið þar með kynningu og framsögu. Ég hef ekki hugmynd um hvort hann átti frumkvæðið að því eða hvað. En umræðan var auðvitað sú innan ráðsins að við þyrftum að fá góðar upplýsingar um hver staðan er á þessu máli.

Ég vil ítreka að það er ríkisstjórn Íslands sem ber ábyrgð á þessari stöðu og ráðherrar málaflokksins en ekki þjóðaröryggisráð. Það er bara ekki þannig vettvangur. Mér finnst vont þegar verið er að breyta hlutverkinu í umræðunni. Þjóðaröryggisráð er auðvitað stórt og mikið orð en þetta er samráðsvettvangur, hann er mikilvægur en hann skipar ekki fyrir eða sendir út ályktanir.