fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Þetta frumvarp sem við ræðum hér í kvöld er réttilega ættbókarfært til einkavæðingar Símans árið 2005 og myndi ég vilja taka undir flest það sem hv. þm. Oddný Harðardóttir fór yfir í sinni ræðu varðandi það hvernig fólki var talin trú um að ekki væri hægt að skilja að grunnnet fjarskiptainnviðanna frá öðrum rekstrarþáttum Símans fyrir einkavæðingu. Síðan reyndist það bara svo vel gerlegt að hér erum við stödd nokkrum árum seinna að ræða hvernig á að selja grunnnetið úr landi.
Það er dálítið undarlegt að lesa þetta frumvarp og finna ákveðinn áferðarmun á því hvernig er fjallað um þessa mikilvægu grunninnviði sem fjarskiptin eru miðað við hvernig við værum að ræða t.d. um, segjum grunnnet í raforku eða vegakerfið. Það segir sína sögu að þessir grunninnviðir, fjarskiptainnviðirnir, hafi verið slitnir frá öllum öðrum innviðum hins opinbera. Þeir sitja nú í réttnefndu innviðaráðuneyti en fjarskiptunum er komið yfir í annað ráðuneyti þar sem væntanlega gilda önnur lögmál.
Það er rétt að nefna það sem við fórum aðeins inn á við upphaf þingfundar í dag að það er mjög undarlegt hversu langur tími leið frá því að fyrstu hræringar gera vart við sig um að fjárfestar væru farnir að sýna áhuga á að festa kaup á Mílu. Fréttir voru skrifaðar af því í september á síðasta ári og síðan í júlí á þessu ári voru enn skrifaðar fréttir um að fjöldi fjárfesta væru að undirbúa kauptilboð í Mílu. Maður hlýtur að spyrja: Hvers vegna leið þessi langi tími, hvers vegna leið allur síðasti vetur án þess að stjórnvöld rönkuðu við sér að hér þyrfti mögulega að grípa í taumana? (Gripið fram í: Nákvæmlega.) Þetta er þjóðaröryggismál og með þjóðaröryggis- og varnarmálahaukana úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki við ríkisstjórnarborðið hefði ég ekki búist við slíkri léttúð þegar kemur að öryggi grunninnviða samfélagsins. Engu að síður er það ekki fyrr en skaðinn er skeður, eða svo maður noti ekki jafn gildishlaðið orðalag, ekki fyrr en kauptilboð er komið og franski sjóðurinn er mættur og ætlar að handsala afsal á Mílu, að ríkisstjórnin rankar við sér og semur í snarhasti það frumvarp sem við höfum hér fyrir framan okkur. Þetta eru náttúrlega ekki boðleg vinnubrögð þegar kemur að einhverju jafn mikilvægu og aðalfjarskiptakerfi heils lands.
Ég ætla ekki að lengja umræðuna með því að ræða hversu slæmt það hafi í raun verið að færa Mílu úr höndum hins opinbera en kannski rétt að nefna t.d. þær háu fjárhæðir sem hafa runnið úr fjarskiptasjóði til að tryggja að þau svæði sem ekki uppfylla markaðsforsendur fái notið þeirra mannréttinda sem það er orðið að vera í tryggum samskiptum við umheiminn. Míla hefur ekki og á kannski ekki að þurfa standa undir því að ljóstengja allt landið og þess vegna er kannski rétt að spyrja eins og gert var þegar fregnir bárust af því að til stæði að selja Mílu: Er einhver ástæða til að láta einkaaðila halda um þjónustu sem ekki má fara á hausinn? Míla er slík þjónusta.
Við lifum náttúrlega heilmikla einkavæðingartíma í ríkisstjórnum Katrínar Jakobsdóttur. Það er verið að einkavæða hluta af vegakerfinu með vegtollum og PPP-framkvæmdum í vegakerfinu, en ég hefði ekki haldið að þessir grunninnviðir væru sama marki brenndir.
Svo ég víki aðeins að frumvarpinu sjálfu þá tek ég undir með þeim sem hér hafa tekið til máls fyrr í umræðunni að það sem snertir staðsetningu innan íslenskrar lögsögu er líklega eitt mikilvægasta atriðið í þessu frumvarpi og eiginlega ótrúlegt hvað er illa frá því gengið. Hér sagði ráðherra í andsvörum að ráðuneytið hefði alveg spurt sig, eins og ég spurði hana í andsvörum, hvort færi ekki betur á því að skylda þá sem reka samfélagslega mikilvæga grunninnviði til að vera innan íslenskrar lögsögu frekar en að útfæra það með veiku reglugerðarákvæði eins og er í frumvarpinu. Þetta þótti ráðuneytinu bara of flókið að útfæra. Ég held að það sé nógu mikilvægt að búa þessu tryggan sess til þess að ráðuneytið þurfi bara að bíta á jaxlinn og gera eitthvað sem er flókið. Ég vænti þess að við munum skoða það af fullri alvöru í umhverfis- og samgöngunefnd að bæta úr þessum vankanti á frumvarpinu en tímans vegna þá óttast ég að sjálfsögðu, eins og fram hefur komið, að flýtirinn gæti orsakað mistök þannig að við náum ekki nógu vel utan um þetta. Þess vegna hefði nú verið gott ef hæstv. ríkisstjórn hefði nýtt tímann betur og komið með fullunnið frumvarp sem næði utan um allar spurningar í þessu máli.
Í greinargerð og í framsögu hæstv. ráðherra var lögsagan umfram allt og eiginlega eingöngu nefnd í tengslum við möguleika Fjarskiptastofu til að hafa eftirlit með fjarskiptainnviðum. En ég verð að nefna að þetta virkar líka í hina áttina. Þetta er eitthvað sem við megum jafnvel hafa dálitlar áhyggjur af. Segjum sem svo að fjarskiptainnviðir Íslands væru reknir frá landi X og í landi X eru sett lög sem skylda rekstraraðila til að njósna um fjarskipti, um sín kerfi, og afhenda ríkisstjórn X gögnin. Er þá land X komið með einhvers konar lögsögu innan Íslands, bara vegna þess að netin okkar eru tæknilega séð í þeirra höndum? Hvernig getum við tekið á þessu? Þetta er nefnilega dálítið erfitt. Segjum t.d. að stjórnvöld í þessu ónefnda landið gerðu kröfu um að leynd hvíldi yfir slíkri afhendingu. Þá er ekkert sem hægt er að gera. Við lendum jafnvel í vandræðum þó að við setjum mjög skýrt ákvæði inn í lögin, alls konar viðurlög og sektarákvæði og bara hvað sem hægt er að nefna. En þá eru bara komnir hvatar til að láta ekki góma sig og allt eins líklegt að fólk reyni að finna einhverja leið fram hjá reglunum til að þóknast stjórnvöldum í hinu landinu. Þetta eru engar fjarlægar tröllasögur heldur bara eitthvað sem við eigum regluleg dæmi um, eins og t.d. varðandi netnjósnir bandarískra stjórnvalda í gegnum danska fjarskiptainnviði með vitund og vilja danskra stjórnvalda. Það er því mjög glannalegt að búa ekki betur um þetta ákvæði.
Síðan er frekar slæmt að ekki sé búið að skilgreina t.d. mikilvæga innviði vegna þess að forsætisráðherra eigi eftir að skila frumvarpi þess efnis til þingsins og þar með sé ramminn fyrir neyðarhemilinn til framtíðar óljós. Það má líka spyrja sig hvort þau ákvæði sem snúa að þessum málum í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri nái nógu skýrt og nógu sterkt yfir mögulega endursölu á Mílu til þriðja aðila. Og þetta er alveg ótrúlega skrýtið, herra forseti, í ljósi þess hversu auðvelt stjórnvöldum hefur reynst að búa betur um hnútana í öðrum málum, t.d. í málum sem heyra til innviðaráðuneytisins sem heldur um alla innviði nema fjarskiptainnviði. Þar samþykktum við bara í fyrra lög um breytingu á raforkulögum þar sem var meira að segja horfið frá einkavæðingarmöguleikanum sem var á Landsneti þegar til þess fyrirtækis var stofnað. Það var bætt inn svohljóðandi málslið: „Flutningsfyrirtækið skal vera í beinni eigu íslenska ríkisins og/eða sveitarfélaga.“ Nú hefur náttúrlega komið fram hérna í umræðunni að Landsnet er ekkert fullkomið í því að reisa flutningsmannvirki og það er ýmislegt sem má bæta í rekstri þess. En hérna kristallast öryggissjónarmiðið. Við erum með eitt kerfi utan um dreifingu raforku um landið. Það kerfi skal vera í samfélagslegri eigu. Við samþykktum það í júní. En svo allt í einu gegnir allt öðru um dreifikerfi fjarskipta og allra upplýsinga landsins. Því miður var þetta allt einkavætt 2005 en það hlýtur að vera hægt að koma einhverjum traustari böndum utan um þetta.
En þá er það tíminn, forseti. Umhverfis- og samgöngunefnd eru gefnir fjórir dagar til að klára málið. Það eru risastór pólitísk viðfangsefni í þessu frumvarpi sem er skilað ókláruðu til þingsins og við eigum að klára þetta fyrir helgi. Þetta er náttúrlega fullkomlega ólíðandi framkoma ríkisstjórnarinnar við þingið. Ég má til með að enda þetta á léttu nótunum, forseti, vegna þess að við höfum rætt líka önnur lög sem eiga að bæta umhverfi þessa reksturs og það eru fjarskiptalögin, heildarendurskoðun fjarskiptalaga. Það var einmitt rifjað upp í andsvörum áðan að þau voru svo til tilbúin í umhverfis- og samgöngunefnd í vor. Það strandaði á voðalega fáu til að klára þau. Það sem drap heildarendurskoðun fjarskiptalaga var bara einhver kýtingur á milli stjórnarflokkanna, enn eitt dæmið um það hvernig, hvað eigum við að segja, ósamlyndi stjórnarflokkanna hefur bein og veruleg áhrif á samfélagið. Með heildarendurskoðun fjarskiptalaga hefði mögulega verið búið betur um hnútana hvað sumt varðar í Mílusölunni. Svo er ýmislegt annað sem hékk á þeirri spýtu. Útboð á tíðnisviðum fyrir 5G-væðinguna t.d., það bíður eftir því að við klárum það frumvarp. Noregur og Svíþjóð buðu út 5G-tíðnirnar haustið 2020. Ísland hefði getað gert það árið 2021 ef stjórnarflokkarnir hefðu ekki flækst fyrir sjálfum sér með fjarskiptalögin í vor. Í staðinn verðum við væntanlega tveimur árum á eftir Norðmönnum og Svíum að 5G-væða landið.
Herra forseti. Þetta átti nú að vera á léttu nótunum, fyrirgefið, en ég nefni þetta vegna þess að þetta er svo hrópandi dæmi um það að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, hvort sem er sú fyrri eða síðari, hefur í fjarskiptamálum eins og svo mörgu öðru látið innanhússeiginhagsmuni flokkanna ráða för frekar en almannahagsmuni.